fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Eyjan

Borgin vill rukka þá sem nota nagladekk: Katrín leggur ekki í sumar ferðir með börnin í bílnum á ónegldum dekkjum

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 24. maí 2017 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Júlíusdóttir. Mynd: DV

„Á í snúnu sambandi við þetta mál. Vil undir öllum kringumstæðum gæta að umhverfinu í daglegu lífi fjölskyldunnar því margt smátt gerir svo sannarlega eitt stórt í þeim efnum. Á hinn bóginn verð ég að viðurkenna að þó ég hafi alla tíð verið örugg í umferðinni þá eru skilyrði hér oft með þeim hætti að fátt dugar annað en naglar.“

Þetta segir Katrín Júlíusdóttir fyrrverandi ráðherra og þingmaður Samfylkingarinnar á Fésbók. Tilefnið er frétt Vísis þess efnis að fyrir liggi tillaga frá umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkurborgar. Í stuttu máli kveður tillagan á um það að þeir ökumenn sem kjósa að aka um á negldum hjólbörðum greiði fyrir það gjald þann tíma sem notkun nagladekkjanna er leyfð.

Margir hafa tjáð sig um þessa tillögu og sitt sýnist hverjum. Katrín segir til dæmis að í sumum kringumstæðum komi lítið annað til greina en að aka um á negldum dekkjum.

Við notum bíla með ólíkum hætti eins og lífsmynstur okkar er ólíkt. Þannig höfum við búið í blokk í Kópavogi þar sem bílastæðið var í mikilli brekku. Heilsársdekkin spóluðu þar upp í morgunísingunni og stundum snérist kagginn einfaldlega vegna hallans – bílnum lagt í halla og tekið af stað í halla án möguleika á „tilhlaupi“. Svo er hitt að við fjölskyldan eigum gjarnan leið út úr bænum allt árið um kring. Þrengslin og Kambana legg ég ekki í með börnin í bílnum ónegldum yfir veturinn. Þar er oftast hált. Er ég histerískur öryggisfíkill, glataður bílstjóri eða clueless úthverfatút.

Áslaug Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Mynd: DV

Mikil sátt þarf að ríkja um gjaldtöku

Fleiri hafa látið sig málið varða á samfélagsmiðlum í dag, þar á meðal Áslaug María Friðriksdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem segir að Sjálfstæðisflokkurinn í borginni telji mikilvægt að reyna að takmarka notkun nagladekkja. Hins vegar bendir hún á það að ef það á að fara í gjaldtöku þurfi að ríkja um það verulega mikil sátt. Slíkri sátt megi vinna að með íbúakosningum.

Því lögðum við fram breytingartillögu um að heimild til gjaldtöku yrði aðeins virkjuð ef helmingur samþykkti slíkt í íbúakosningum sem gætu farið fram rafrænt. Slík kosning yrði einnig til þess að auka fræðslu um skaðsemi nagladekkja í leiðinni og jafnvel þó að ekki náist að samþykkja gjaldheimtu muni umræðan um skaðsemina eflaust fá ennþá fleiri til að hætta notkun nagladekkja. Málið er mikið umhverfismál en hins vegar eru margir til sem telja öryggi sínu ógnað nema keyra um á nagladekkjum og auðvitað eru aðstæður fólks ærið misjafnar. En í þessu tilfelli er kannski mikilvægast að tryggja það að samráði við íbúa sé sinnt og tekið alvarlega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Margur verður af aurum api

Óttar Guðmundsson skrifar: Margur verður af aurum api
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir Moggann fara með fleipur – „Langt því frá fordæmalaus“

Segir Moggann fara með fleipur – „Langt því frá fordæmalaus“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist þreyttur á skítadreifurum Sjálfstæðisflokksins – „Eina sem núverandi dómsmálaráðherra gerði var að þrífa upp“

Segist þreyttur á skítadreifurum Sjálfstæðisflokksins – „Eina sem núverandi dómsmálaráðherra gerði var að þrífa upp“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra