

Landsliðskappinn Jón Daði Böðvarsson, leikmaður Wolves á Englandi, og kærasta hans, María Ósk Skúladóttir, trúlofuðu sig fyrir skemmstu. Fjölmargir hafa óskað parinu til hamingju á Facebook-síðu Jóns Daða en þau trúlofuðu sig þann 17. janúar síðastliðinn en opinberuðu trúlofunina þó ekki fyrr en á miðvikudag. Jón Daði er sem kunnugt er lykilmaður í íslenska landsliðinu en hann er uppalinn á Selfossi. María Ósk er frá Kirkjubæjarklaustri og hafa þau verið saman í nokkur ár.