fbpx
Mánudagur 11.ágúst 2025
Eyjan

Sólveig Anna segir Sjálfstæðisflokkinn vera „kyndilbera grimmdar og mannvonsku“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 15. maí 2019 18:00

Sólveig Anna Jónsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG sem styður ekki ríkisstjórnarsamstarfið nema í sumum málum, hefur lagt fram fyrirspurn til utanríkisráðherra um hvers vegna Ísland hafi setið hjá þegar mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun um að fylgja skyldi alþjóðlegum mannúðar- og mannréttindalögum á hernumdu svæðunum í Palestínu og réttað yfir þeim sem brytu þau.

Einnig spyr hún hvort sú hjáseta samrýmist ályktun Íslands um viðurkenningu á Palestínu sem sjálfstæðs og fullvalda ríkis innan landamæranna frá því fyrir Sex daga stríðið árið 1967 og hvort um stefnubreytingu sé að ræða af hálfu Íslands.

Fyrirspurninni hefur ekki verið svarað ennþá, en Sólveig Anna Jónsdóttir, deilir frétt Stundarinnar um málið og skrifar eftirfarandi texta:

„Mjög gott hjá henni en mikið hlýtur það að vera „skrítið“ að deila völdum með Sjálfstæðisflokknum, kyndilbera grimmdar og mannvonsku í íslenskri utanríkispólitík.“

Ályktun Sameinuðu þjóðanna var samþykkt með 23 atkvæðum gegn átta. Í henni voru hernaðaraðgerðir gegn óbreyttum borgurum fordæmdar, sem og börnum, heilbrigðisstarfsmönnum og fötluðum. Þá voru hótanir og þvingarnir gagnvart mannréttinda- og hjálparsamtökum fordæmdar og lagt til að SÞ fjölguðu starfsmönnum sem annist eftirlit með skráningu brota gegn alþjóðalögum í Palestínu.

Eins og fyrr sagði sat Ísland hjá í málinu.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Sjálfstæðisflokk og Framsókn hafa gert andstöðu við atkvæðagreiðslur að sérstöku baráttumáli

Segir Sjálfstæðisflokk og Framsókn hafa gert andstöðu við atkvæðagreiðslur að sérstöku baráttumáli
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Keisarinn veginn á kamrinum

Björn Jón skrifar: Keisarinn veginn á kamrinum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi