fbpx
Mánudagur 11.ágúst 2025
Eyjan

Kristján Þór boðar öflugt eftirlit með fiskeldi

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 5. mars 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á ýmsum lögum sem tengjast fiskeldi. Frumvarpið byggir á sáttmála ríkisstjórnarinnar og var við undirbúning þess byggt að verulegu leyti á skýrslu starfshóps um stefnumótun í fiskeldi sem skilaði tillögum sínum með skýrslu hinn 21. ágúst 2017. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Áhættumat erfðablöndunar lögfest og ráðherra staðfesti tillögu að áhættumati

Stefna stjórnvalda er að ákvarðanir um uppbyggingu fiskeldis verði byggðar á ráðgjöf vísindamanna. Af þeim sökum er lagt til í frumvarpinu að áhættumat erfðablöndunar verði lögfest og að það verði lagt til grundvallar leyfilegu magni af frjóum eldislaxi í sjókvíum á hverjum tíma. Frumvarpið gerir ráð fyrir að Hafrannsóknastofnun geri bindandi tillögur að áhættumati erfðablöndunar en tillögurnar verði áður bornar undir samráðsnefnd um fiskeldi til faglegrar og fræðilegrar umfjöllunar. Nefndin getur ekki gert neinar breytingar á áhættumatinu. Ráðherra staðfestir í kjölfarið áhættumat erfðablöndunar samkvæmt tillögu Hafrannsóknastofnunar og er sú tillaga bindandi fyrir ráðherra.

Þá er í frumvarpinu kveðið á um að Hafrannsóknastofnun skuli leggja tillögu að endurskoðuðu áhættumati erfðablöndunar fyrir samráðsnefnd um fiskeldi innan tveggja mánaða eftir að lögin hafa verið birt í Stjórnartíðindum.

Samráðsnefnd um fiskeldi sett á fót

Með frumvarpinu er lagt til að ráðherra skipi samráðsnefnd sem er stjórnvöldum til ráðgjafar vegna málefna fiskeldis. Markmið þessa er að styrkja vísindalegan grundvöll áhættumatsins og stuðla að nauðsynlegu samráði um uppbyggingu fiskeldis. Hlutverk samráðsnefndarinnar er að leggja mat á forsendur og úrvinnslu þeirra gagna sem áhættumat erfðablöndunar byggist á en einnig að taka aðra þætti til skoðunar. Mikilvægt er að allir helstu aðilar hafi sameiginlegan vettvang til skoðanaskipta um þetta mikilvæga tæki sem áhættumatið er en einnig um aðra þætti sem snerta málefni fiskeldis.

Í nefndinni eiga sæti fimm fulltrúar og eru þeir skipaðir til fjögurra ára í senn. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipar formann nefndarinnar. Þá tilnefna Hafrannsóknastofnun, fiskeldisstöðvar, Landssamband veiðifélaga og Samband íslenskra sveitarfélaga fulltrúa í nefndina.

Vöktun og heimild til aðgerða vegna laxalúsar

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að innra eftirlit sjókvíaeldisstöðvar skuli meðal annars fela í sér vöktun á viðkomu laxalúsar í eldinu í samræmi við leiðbeiningar sem fram koma í reglugerð sem ráðherra setur. Niðurstöður vöktunar skulu sendar Matvælastofnun sem metur hvort og þá hvaða aðgerða er þörf vegna laxalúsar.

Jafnframt er lagt til að sett verði skýr reglugerðarheimild í lög um varnir gegn fisksjúkdómum fyrir ráðherra til að setja ákvæði um vöktun og aðgerðir vegna laxalúsar. Í slíkri reglugerð er ráðherra heimilt að mæla fyrir um aðgerðir vegna sníkjudýra í fiskeldi, svo sem um skyldu rekstraraðila til að telja laxalús við tilteknar aðstæður, tiltekin viðmiðunarmörk þar sem viðbragða er þörf og aðgerðir vegna útbreiðslu laxalúsar.

Aukið gegnsæi í fiskeldisstarfsemi

Með frumvarpinu er leitast við að auka gegnsæi í fiskeldisstarfsemi. Liður í þessu er að skylda fiskeldisfyrirtæki til að láta upplýsingar um starfsemi sína til stjórnvalda verða umfangsmeiri en samkvæmt gildandi lögum. Lagt er til að stjórnvöld fái upplýsingar mánaðarlega þannig að hægt verði að leggja mat á breytingar í eldi á eldistímanum og þannig greina hvernig það þróast. Slíkar upplýsingar munu gefa opinberum eftirlitsaðilum betri mynd af rekstrinum og bæta eftirlit þeirra.

Öflugt eftirlit með fiskeldisstarfsemi

Núverandi ákvæði um innra eftirlit fiskeldisstöðva eru í reglugerð nr. 1170/2015 um fiskeldi. Í frumvarpinu er lagt til að sett verði ítarlegt lagaákvæði um skyldu rekstrarleyfishafa til að starfrækja innra eftirlit. Jafnframt er gerð sú krafa að frávik við eftirlit Matvælastofnunar sé innan ásættanlegra marka. Öflugt innra eftirlit á að tryggja að starfsemin sé í lagi og uppfylli settar kröfur. Með þessu eru forsendur til að byggja upp áhættumiðað eftirlit með fiskeldi sem þýðir að fiskeldisfyrirtæki sem hafa sinn rekstur í lagi og starfa í samræmi við kröfur laga og stjórnvaldsfyrirmæla fá færri eftirlitsheimsóknir en þau sem ekki uppfylla kröfurnar.

Tímabundnar rannsóknir Hafrannsóknastofnunar

Vegna áherslu á rannsóknir og vöktun lífríkisins gerir frumvarpið sérstaklega ráð fyrir heimild Hafrannsóknastofnunar til að stunda tímabundnar rannsóknir á fiskeldi í fiskveiðilandhelgi Íslands, ein eða í samstarfi við aðra. Með því er horft til þess að auðvelda og greiða fyrir nauðsynlegum rannsóknum vegna fiskeldis og þá sérstaklega eldistilraunum vegna sjókvíaeldis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Sjálfstæðisflokk og Framsókn hafa gert andstöðu við atkvæðagreiðslur að sérstöku baráttumáli

Segir Sjálfstæðisflokk og Framsókn hafa gert andstöðu við atkvæðagreiðslur að sérstöku baráttumáli
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Keisarinn veginn á kamrinum

Björn Jón skrifar: Keisarinn veginn á kamrinum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum enn á móti litasjónvarpi