fbpx
Föstudagur 08.ágúst 2025
433Sport

Liverpool reyndi að kaupa Gylfa en nú vill hann skemma fyrir félaginu

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 27. febrúar 2019 13:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gylfi Þór Sigurðsson átti frábæran leik fyrir lið Everton sem spilaði við Cardiff í Wales í gær.

Leikið er í ensku úrvalsdeildinni en leiknum lauk með sannfærandi 3-0 sigri gestanna frá Liverpool.

Gylfi skoraði tvö af mörkum Everton í leiknum og er kominn með 57 mörk í úrvalsdeildinni.

Gylfi var að skora sitt 11. mark í deildinni á tímabilinu og hefur jafnað eigið markamet sem kom tímabilið 2015/2016 með Swansea.

Miðjumaðurinn knái fer því fullur sjálfstrausts inn í grannaslaginn gegn Liverpool á sunnudag. Liverpool reyndi að kaupa Gylfa sumarið 2012, hann hafnaði liðinu til að ganga í raðir Tottenham.

Liverpool berst á toppi deildarinnar og gæti unnið deildina í fyrsta sinn í 29 ár, það kveikir í leikmönnum Everton að reyna að koma í veg fyrir það. ,,Að sjálfsögðu eykur það hungur okkar í sigur,“ sagði Gylfi þegar hann var spurður um hvort sú staðreynd að Liverpool væri á toppnum myndi kveikja í leikmönnum Everton, að þeir gætu skemmt fyrir liðinu.

,,Það skiptir samt aldrei máli hvar þeir eru í deildinni, þú ætlar alltaf að vinna þessa leiki. Sérstaklega eftir vonbrigðin í síðasta leik gegn þeim,“
sagði Gylfi þar sem Liverpool skoraði sigurmark í uppbótatíma.

,,Að tapa grannaslag svona, var mjög svekkjandi. Þetta eru leikirnir sem þú ert spenntastur fyrir í upphafi tímabils.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Solskjær fær leikmann með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni

Solskjær fær leikmann með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Nýliðarnir sækja reynslumikinn markvörð

Nýliðarnir sækja reynslumikinn markvörð
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Orðinn atvinnulaus rúmu hálfu ári eftir slysið skelfilega

Orðinn atvinnulaus rúmu hálfu ári eftir slysið skelfilega
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Enn einn leikmaðurinn samdi við nýliðana

Enn einn leikmaðurinn samdi við nýliðana
433Sport
Í gær

Launapakki Darwin Nunez í Sádí opinberaður – Fær þrefalt meira en hjá Liverpool og þénar meira en bestu leikmenn heims

Launapakki Darwin Nunez í Sádí opinberaður – Fær þrefalt meira en hjá Liverpool og þénar meira en bestu leikmenn heims
433Sport
Í gær

Magnús ósáttur og skorar á dómara

Magnús ósáttur og skorar á dómara
433Sport
Í gær

Hörmulegur atburður: Stakk sér til sunds með kærustunni – Fannst látinn nokkrum klukkustundum síðar

Hörmulegur atburður: Stakk sér til sunds með kærustunni – Fannst látinn nokkrum klukkustundum síðar
433Sport
Í gær

Smellir „here we go“ á skipti Darwin Nunez

Smellir „here we go“ á skipti Darwin Nunez