fbpx
Þriðjudagur 05.maí 2026
433Sport

Aron Einar er hugsi: Af hverju fær Gylfi þessa gagnrýni? – Er þetta ástæðan?

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 26. febrúar 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson verða í eldlínunni þegar Cardiff tekur á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Tveir mikilvægustu leikmenn íslenska landsliðsins á sama vellinum í erfiðustu deild í heimi.

Aron var ónotaður varamaður um liðna helgi en Everton er að spila sinn fyrsta leik í rúmar tvær vikur. Búist er við að báðir verði í byrjunarliðinu í kvöld.

,,Hann er mjög góður leikmaður, hann hefur skorað níu mörk á þessu tímabili. Við verðum að reyna að halda honum í skefjum,“ sagði Aron fyrir leikinn í höfuðborg Wales í kvöld.

Gylfi hefur fengið talsverða gagnrýni frá stuðningsmönnum Everton þrátt fyrir að vera jafn besti leikmaður liðsins á þessu tímabili.

,,Ég skil ekki þessa gagnrýni sem hann hefur fengið, hann hefur sannað sig í ensku úrvalsdeildinni. Ég skil það að hann hafi kostað mikið og með svona verðmiða kemur pressa, ég skil það.“

,,Hann er samt með níu mörk og fimm eða sex stoðsendingar, þú veist hvað þú færð frá honum og hann er líklega sá leikmaður sem skapar mest hjá þeim.“

Aron telur að sú staðreynd að Everton hafi borgað 45 milljónir punda fyrir Gylfa, sumarið 2017. Sé ástæða þess að hann fái gagnrýni.

,,Gagnrýnin snýst eflaust um verðmiðann, hann er sterkur andlega og þetta hefur ekki áhrif á hann. Við verðum að passa vel að hann geri ekkert. Everton hefur samt fleiri leikmenn, þeir eru með gæði út um allan völl. Við verðum að spila okkar besta leik til að gera eitthvað.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Furðuleg staða komin upp í Portúgal – Lærisveinar Mourinho ekki tapað leik en vinna samt ekki titilinn

Furðuleg staða komin upp í Portúgal – Lærisveinar Mourinho ekki tapað leik en vinna samt ekki titilinn
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Kemur með töfra frá tíma Sir Alex aftur inn í félagið

Kemur með töfra frá tíma Sir Alex aftur inn í félagið
433Sport
Í gær

Ferguson fluttur á sjúkrahús – Var mættur á Old Trafford en leið illa

Ferguson fluttur á sjúkrahús – Var mættur á Old Trafford en leið illa
433Sport
Í gær

Arteta í skýjunum – „Draumurinn lifir“

Arteta í skýjunum – „Draumurinn lifir“