Það fór fram stórleikur á Englandi í dag er lið Manchester United tók á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.
Fyrri hálfleikurinn í dag var ansi undarlegur en United þurfti að skipta þremur leikmönnum af velli vegna meiðsla.
Liðinu tókst þó að enda leikinn með 11 menn á vellinum en Marcus Rashford var tæpur og var í erfiðleikum.
Því miður fyrir áhorfendur var ekki boðið upp á nein mörk í leik dagsins en færin voru af skornum skammti.
Markalaust jafntefli því niðurstaðan í Manchester sem eru ekki frábær úrslit fyrir þessi lið.
Á sama tíma áttust við lið Arsenal og Southampton en þar unnu heimamenn í Arsenal góðan sigur.
Þeir Alexandre Lacazette og Henrikh Mkhitaryan skoruðu mörk Arsenal í 2-0 sigri.
Manchester United 0-0 Liverpool
Arsenal 2-0 Southampton
1-0 Alexandre Lacazette(6′)
2-0 Henrikh Mkhitaryan(17′)