fbpx
Miðvikudagur 10.desember 2025
Fréttir

Pössum upp á gæludýrin okkar á jólunum: Þessi atriði er vert að hafa í huga

Auður Ösp
Laugardaginn 22. desember 2018 21:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jólahald getur oft á tíðum verið krefjandi fyrir gæludýr og eigendur þeirra. Kertin, konfektið, grenitrén og jólaseríurnar fylla okkur vellíðan og gleði en um leið getur skapast álag og hætta fyrir ferfætlinga og fjaðraða fjölskyldumeðlimi.

MAST bendir gæludýraeigendum á eftirfarandi hluti sem gætu reynst varasamir í kringum jólin.

Varasamur matur

Matur sem er varasamur fyrir gæludýrin er oft óvanalega aðgengilegur á jólum. Súkkulaði, laukur, rúsínur, avokado og vínber eru matvæli sem geta verið hættuleg dýrunum þínum. Skörp bein, svo sem fuglabein eða lambabein, geta stungist í gegnum meltingarveginn og önnur bein geta valdið stíflu. Sjá upplýsingasíðu Matvælastofnunar um varasaman mat fyrir gæludýr.

Jólatré

Flest tré eru ekki mjög eitruð en geta samt valdið niðurgangi og uppköstum ef þau eru étin. Nálarnar sjálfar geta líka valdið ertingu, stungist í slímhúð og jafnvel í þófa. Köttum finnst oft gaman að fara á jólaskrautveiðar og geta lent í því að velta trjánum ef þau eru ekki vel skorðuð. Ekki er heldur víst að glerkúlur lifi slíkt fall af og glerbrot geta valdið skaða.

Skreytingar

Bæði hundar og kettir geta tekið upp á því að éta gjafabönd og bandskreytingar. Ef böndin festast á leið sinni í gegnum meltinguna geta þau skapað mikla hættu fyrir dýrið. Stundum festist hluti af spottanum utan um tungu þó hluti af honum gangi niður. Ef spotti er kominn í maga eða þarm og gengur svo aftur úr dýri eða upp úr því er mjög mikilvægt að alls ekki toga í spottann þar sem það getur skorið þarmana eða vélindað eins og hnífur. Leitið strax til dýralæknis.

Hundar sérstaklega geta tekið upp á því að bíta í jólaseríur og geta þá fengið óþægilegt rafstuð.

Blóma- og kertaskreytingar geta verið varasamar. Gæludýr vara sig oft ekki á kertaljósum og eiga það til að brenna sig og kveikja í feldinum ef þau fara of nálægt. Ófáir kettir hafa kveikt í veiðihárunum í þeirri tilraun að þefa af kertunum. Reynið að setja logandi ljós þar sem dýrið kemst ekki að því. Ef dýr fá heitt kertavax framan í sig getur þurft að skoða hvort það hafi brennt eða skaðað hornhimnu og ef dýrið pýrir augu getur það verið einkenni um skaða. Jólastjörnur, mistilteinn og önnur jólablóm eru mildilega eitruð ef þau eru étin og geta valdið slefi, uppköstum, niðurgangi.

Rafhlöður

Hátíðin er sá tími sem rafhlöður liggja oft meira aðgengilegar en ella og því sá tími árs sem þær eru oftar gleyptar. Rafhlöður geta verið hættulegar vegna þungmálmainnihalds og sýru eða geta valda stíflu. Ef þig grunar að gæludýrið þitt hafi gleypt rafhlöðu hafið samband við dýralækni.

Frostlögur

Desember og janúar eru oft köldustu mánuðir ársins og því tíminn sem frostlögur er dreginn fram. Frostlögur er sætur og getur því verið freistandi fyrir gæludýr að smakka á ef hann er aðgengilegur. Jafnvel mjög lítið magn getur valdið alvarlegri eitrun og nýrnaskaða og þarf því umsvifalaust að komast til meðferðar hjá dýralækni ef grunur leikur á að dýrið hafi komist í frostlög.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Banaslys í Mosfellsbæ

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Fengu afsökunarbeiðni frá Þórunni – „Það hefur enginn verið jafn miður sín“

Fengu afsökunarbeiðni frá Þórunni – „Það hefur enginn verið jafn miður sín“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Ársæll reiður yfir fréttaflutningi DV og segir uppljóstrara vera í kennarahópnum

Ársæll reiður yfir fréttaflutningi DV og segir uppljóstrara vera í kennarahópnum
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum
Banaslys í Mosfellsbæ