fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Subway gefur 1350 máltíðir til Fjölskylduhjálpar Íslands

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 6. desember 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alþjóðlega samlokudeginum var fagnað á Subway á Íslandi þann 2. nóvember, en þessum skemmtilega degi er fagnað á Subway stöðum um allan heim í nóvember. Mikil stemning var á veitingastöðum Subway á Íslandi þennan dag, en í tilefni dagsins var viðskiptavinum boðið upp á frían bát með keyptum bát auk þess sem fyrirtækið skuldbatt sig til þess að gefa matargjöf til Fjölskylduhjálpar Íslands fyrir hvern seldan bát.

Í gær, 5. desember, afhenti Subway á Íslandi svo Fjölskylduhjálp 1350 máltíðir að verðmæti um 1,3 milljóna króna sem verða afhentar fjölskyldum í jólamánuðinum. Brynja Björk Garðarsdóttir, markaðsstjóri Subway afhenti Ásgerði Jónu Flosadóttur formanni Fjölskylduhjálpar styrkinn.

„Þetta er í annað sinn sem Subway leggur okkur lið fyrir jólin og þessi rausnarlega gjöf mun koma sér vel fyrir okkar skjólstæðinga líkt og í fyrra,“ segir Ásgerður Jóna, en árið 2017 úthlutaði Fjölskylduhjálp hátt í 23 þúsund matargjöfum til skjólstæðinga sinna.

„Þörfin fyrir aðstoð er brýn og okkur finnst mikilvægt að gefa þeim sem standa höllum fæti í samfélaginu tækifæri til þess að gera sér dagamun í desember og fara á veitingastað með fjölskylduna. Við erum þakklát öllum okkar tryggu viðskiptavinum sem keyptu bát hjá okkur á samlokudaginn og lögðu þannig hönd á plóg með okkur. Við viljum einnig skora á önnur fyrirtæki að leggja sitt af mörkum fyrir jólin,“ segir Brynja Björk.

Um Fjölskylduhjálp Íslands

Fjölskylduhjálpin var stofnuð árið 2003 af fimm konum. Fjölskylduhjálp úthlutar matvælum, notuðum og nýjum fatnaði, ungbarnavörum, notuðum og nýjum leikföngum árið um kring. Til hennar leita öryrkjar, atvinnulausir, einstæðar mæður og feður, eldri borgarar, efnaminni fjölskyldur og einstæðingar.

Um Subway á Íslandi

Subway hefur starfað á Íslandi í tæpan aldarfjórðung, en fyrsti veitingastaðurinn var opnaður árið 1994. Núna eru staðirnir 22 talsins á landinu. Fyrir utan höfuðborgarsvæðið er að finna Subway staði í Keflavík, á Akureyri, Selfossi, Akranesi og Egilsstöðum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans
Fókus
Fyrir 3 dögum

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár