fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fókus

Elín Kára – Desemberplanið

Elín Kára
Mánudaginn 3. desember 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég er ein af þeim fjölmörgu sem hefur engin jól eins. Það þýðir að jólin á hverju ári eru sniðin eftir stöðu fölskyldunnar hverju sinni. Með því verða engin jól eins þó þau verði alltaf eitthvað svipuð á milli ára. Nú er til dæmis komin upp ný staða, þar sem þetta eru fyrstu jólin þar sem við hjónin eigum tvö börn. Fyrir vikið þarf að taka tillit til þess á hvaða aldri þau eru og stilla „öllu sem þarf að gera“ í hóf miðað við það.

Mig langar til að deila með öllum sem vilja lesa, því hvernig ég ætla að haga mínum málum í desember.

Markmiðin mín fyrir desember 2018

  • Haga mér þannig í áti og lifnaði að mér líði vel þegar janúar 2019 kemur.
  • Borða einungis 1.900 – 2.000 hitaeiningar á dag. Já, ég mun vigta allan mat sem ég borða! Það er ekkert eðlilegt að borða um 2.500-3.500 hitaeiningar í heilan mánuð, bara vegna þess að það eru að koma jól.
  • Fara út í gönguferð alla rauða daga og frídaga.
  • Vera alltaf með vel hugsaðan innkaupalista þegar ég fer í matvörubúð og kaupa einungis eftir honum.
  • Eyða sem mestum tíma heima með börnunum mínum og eiginmanni í staðinn fyrir í verslunum. Það er búin að vera brjáluð vinnutörn núna á haustmánuðum þannig að þau eiga skilið að fá tíma með mér. Lesa bækur fyrir börnin, föndur, mála, leira og leika sér verður það sem ég ætla gera í mínum frítíma.
  • Jólakort verða farin í póst fyrir 12. desember.
  • Ekkert reykt eða saltað! Mér finnst þetta góður matur en mér líður ekki vel af honum. Í ár verður ekkert reykt né saltað á mínum borðum. Jólaandinn kemur ekki með þrútnum puttum og magaverk.
  • Brosa, já, ég ætla að reyna brosa eins mikið og ég get í desember. Enda skemmtilegur mánuður, tónlist út um allt og kærleikurinn er út um allt.

Þér er velkomið að leika þessa punkta eftir. Ég mæli með því að þú setjir niður nokkra svona punkta um hvernig þú sérð fyrir þér desembermánuð. Svo getur þú rennt yfir þá á gamálársdag og séð hvort þetta hafi gengið vel hjá þér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“
Fókus
Fyrir 2 dögum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tók mynd af sér með nýfæddum syninum en það var mamman í bakgrunninum sem stal senunni

Tók mynd af sér með nýfæddum syninum en það var mamman í bakgrunninum sem stal senunni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun