fbpx
Sunnudagur 10.ágúst 2025
433Sport

Skar getnaðarlim hans af á meðan hann var á lífi: ,,Ég dró hann af eiginkonunni minni og henti honum í jörðina“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 27. nóvember 2018 10:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hræðilegt atvik átti sér stað í Brasilíu á dögunum sem tengdist knattspyrnumanninum Daniel Correa Freitas. Daniel eins og hann er kallaður var samningsbundinn Sao Paulo í heimalandinu sem er eitt stærsta lið Brasilíu.

Daniel fannst látinn í runna í borginni Sao Jose dos Pinhairs í Brasilíu þann 27. október en búið var að skera hann á háls. Nú er greint frá því að Daniel hafi verið myrtur en viðskiptamaðurinn Edson Brittes Junior hefur játað á sig sökina.

Brittes er 38 ára gamall en hann missti stjórn á sér eftir að hafa orðið vitni af ‘Daniel reyna að nauðga eiginkonu sinni’ eins og hann orðar það. Samkvæmt fregnum var Daniel gestur í húsi Brittes kvöldið áður en honum var boðið í 18 ára afmælisveislu dóttur hans, Allana.

Daniel birti svo myndir af sér á WhatsApp þar sem má sjá hann liggja í rúmi eiginkonu Brittes sem var steinsofandi. Hann sendi myndirnar til vina sinna.

Krufning á líki Correa hefur nú átt sér stað en þar kemur fram að getnaðarlimur hans hafi verið skorinn af á meðan hann var á lífi. Hann var einnig stunginn ítrekað út um allt.

,,Ég get sofið hérna. Það eru nokkrar konur sofandi út um allt í húsinu,“ skrifaði Daniel við myndirnar.

,,Ég ætla að ‘borða’ mömmu afmælisstelpunnar og pabbi hennar er hérna.“

Daniel var aðeins 24 ára gamall og var í láni hjá liði Sao Bento sem leikur í næst efstu deild í Brasilíu.

Brittes hefur sjálfur tjáð sig um atvikið en hann segist hafa stöðvað Daniel er hann var að nauðga eiginkonu sinni.

,,Ég dró hann af eiginkonunni minni og henti honum í jörðina og kom í veg fyrir að þetta skrímsli myndi nauðga konunni minni,“ sagði Brittes.

,,Ég lamdi hann ítrekað og fór með hann út úr húsinu. Ég veit ekki hvort hann hafi verið vakandi, meðvitundarlaus eða bara með lokuð augun.“

,,Ég var ekki að hugsa. Ég var með hníf í bílnum, lítinn hníf. Ég vissi ekki að ég myndi gera þetta.“

,,Ég var örvæntingarfullur og var heltekinn af reiði. Ég leit í skottið á bílnum og sá hnífinn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Engir skemmtistaðir og ekkert áfengi – ,,Ert með einn möguleika og það er að vinna þína vinnu“

Engir skemmtistaðir og ekkert áfengi – ,,Ert með einn möguleika og það er að vinna þína vinnu“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ekki valinn í leikmannahópinn og er líklega að kveðja – United eða Newcastle?

Ekki valinn í leikmannahópinn og er líklega að kveðja – United eða Newcastle?
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Þekktur maður dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjársvik – Lofaði að skila öllu en stóð ekki við loforðið

Þekktur maður dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjársvik – Lofaði að skila öllu en stóð ekki við loforðið
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Hitti gamlan vin fyrir leikinn í dag – Mætir sínu fyrrum félagi

Hitti gamlan vin fyrir leikinn í dag – Mætir sínu fyrrum félagi
433Sport
Í gær

Ísland niður um þrjú sæti eftir vonbrigðin á EM

Ísland niður um þrjú sæti eftir vonbrigðin á EM
433Sport
Í gær

Tveir efnilegir lánaðir frá City

Tveir efnilegir lánaðir frá City
433Sport
Í gær

Grímur furðar sig á lögreglunni – „Greinilegt að menn hafi ekki lesið heima“

Grímur furðar sig á lögreglunni – „Greinilegt að menn hafi ekki lesið heima“
433Sport
Í gær

Galdur skrifar undir hjá KR

Galdur skrifar undir hjá KR