fbpx
Föstudagur 26.desember 2025
Fókus

Hefur þú greinst með krabba­mein? Hver er þín reynsla af greiningar­ferli, með­ferð og endur­hæfingu?

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 22. nóvember 2018 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Krabbameinsfélag Íslands vinnur nú að undirbúningi rannsóknar meðal þeirra sem greinst hafa með krabbamein. Taktu þátt og hjálpaðu til með því að benda á þá þætti sem helst þarfnast úrbóta í tengslum við greiningu krabbameins, meðferð og endurhæfingu.

Markmiðið er að finna þá þætti sem helst þarfnast úrbóta. Félagið mun nýta niðurstöðurnar á  ýmsa vegu til að vinna að úrbótum og stefnt er að því að rannsóknin verði fastur liður í starfsemi félagsins með það að markmiði að styrkja félagið í málsvarahlutverki sínu, segir í tilkynningu frá félaginu.

„Það skiptir okkur hjá Krabbameinsfélaginu miklu máli að vera í góðu sambandi við almenning og við hvetjum þá sem hafa reynslu og/eða skoðanir á því hvað megi betur fara til þess að senda okkur línu.“

Upplýsingar um það hvernig við getum þjónað þeim sem greinast með krabbamein og aðstandendum þeirra betur eru okkur afar mikilvægar bæði til að bæta okkar þjónustu og hvetja til úrbóta annars staðar. Enda er eitt af okkar hlutverkum einmitt að vinna að hagsmunamálum,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands.

Nafnlaust og ekki greinanlegt 

Til að auðvelda undirbúning rannsóknarinnar er fólki boðið að senda inn ábendingar um þá þætti sem það telur mikilvægast að spurt sé um í rannsókninni. Hægt er að senda ábendingar í gátt á vef félagsins og með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Ábendingarnar eru nafnlausar og engum persónugreinanlegum upplýsingum verður safnað. Félagið áskilur sér allan rétt til að nýta ábendingarnar eins og réttast þykir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Jólakynlífið sem tryggir þér pláss á óþekka listanum

Jólakynlífið sem tryggir þér pláss á óþekka listanum
Fókus
Í gær

Þau eignuðust barn árið 2025

Þau eignuðust barn árið 2025
Fókus
Fyrir 2 dögum

Missti tönn í jólaleik sem „fór úrskeiðis“

Missti tönn í jólaleik sem „fór úrskeiðis“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sólborg og Ágúst eiga von á stúlku

Sólborg og Ágúst eiga von á stúlku
Fókus
Fyrir 4 dögum

O (Hringur) hlaut dómnefndarverðlaunin í París

O (Hringur) hlaut dómnefndarverðlaunin í París
Fókus
Fyrir 4 dögum

Eva heimsótti ömmu sína á fæðingardeildina – „Ætli það sé ekki svolítið spes“

Eva heimsótti ömmu sína á fæðingardeildina – „Ætli það sé ekki svolítið spes“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Florence Pugh sér eftir því að hafa leikið í kvikmynd Íslendings – „Ég var ung og vantaði pening“

Florence Pugh sér eftir því að hafa leikið í kvikmynd Íslendings – „Ég var ung og vantaði pening“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Reynir að tortíma mannkyninu

Reynir að tortíma mannkyninu