

Rúmlega 77% allra flugferða til og frá Íslandi verða á vegum Icelandair Group ef af verður að kaupum Icelandair á WOW air. Rekstur WOW air hefur verið erfiður að undanförnu og tilkynnti Skúli Mogensen, forstjóri WOW, starfsmönnum í morgun að Icelandair Group hafi keypt flugfélagið og það verði dótturfélag Icelandair. Kaupin eru þó háð samþykkis hluthafa Icelandair Group og Samkeppniseftirlitsins.
Sjá einnig: Sjáðu tölvupóst Skúla Mogensen til starfsfólks WOW
Sjá einnig: Egill óttast að fargjöld hækki og framboð minnki með kaupum Icelandair á Wow
Flugfélögin eru risar á íslenskum flugmarkaði, samkvæmt frétt Túrista frá því í júlí síðastliðnum var Icelandair með 44,7% allra flugferða til og frá landinu, WOW air var í öðru sæti með 32,2% allra ferða. Þetta þýðir að ef kaupin ganga í geng verður 76,9% allra ferða á vegum Icelandair Group.
Ef tölurnar haldast óbreyttar verður Wizz air í öðru sæti með 3,8% allra ferða og EasyJet, SAS, Delta og Norwegian í sætunum fyrir neðan með rúm 2%.