fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fókus

„Mín leið til að gleðja fólk“

Arnúlfur hætti í vinnunni og einbeitir sér að töfrabrögðum – Birtir brögðin á Youtube

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 4. október 2016 23:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er að elta drauminn,“ segir töframaðurinn Arnúlfur Hákonarson í samtali við DV. Arnúlfur ákvað á dögunum að taka sér frí frá hefðbundinni vinnu og freista þess að vinna fyrir sér sem töframaður. Hann heldur úti heimasíðunni arnulfur.is þar sem hann birtir myndbönd af töfrabrögðum sínum. Í nýjasta myndbandinu má sjá hann skemmta nokkrum ungum Norðmönnum.

Arnúlfur, sem er 24 ára Reykvíkingur, hefur fengist við töfrabrögð í nokkur ár en áhuginn kviknaði fyrir alvöru þegar hann var fimmtán eða sextán ára gamall. „Þá sá ég eitt svakalegt töfrabragð á netinu og gat ekki hætt að hugsa um það. Eftir mikla leit lærði ég töfrabragðið og fór að gera það fyrir allan skólann og alla sem ég þekkti. Eitt leiddi af öðru og ég hef ekki getað stoppað síðan,“ segir Arnúlfur við DV.

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=NqAsY8WgFsk&w=560&h=315]

Hann heldur úti Youtube-rás þar sem fylgjast má með töfrabrögðunum hans og skoða skemmtileg kennslumyndbönd, svo eitthvað sé nefnt. Hann er duglegur að fara út á meðal fólks og sýna fólki það sem hann kann. „Hvert sem ég fer eru spilin með í för.“

„Mér finnst gaman að ferðast og þegar ég er á einhverjum fínum stöðum reyni ég alltaf að taka upp nokkur töfrabrögð fyrir fólkið á götunni,“ segir hann en nýjasta myndbandið, þegar þetta er skrifað, er tekið upp í Ósló, höfuðborg Noregs.

Ákvað að taka sénsinn

Hann segir að það sé ekki auðvelt að lifa af listinni á Íslandi. „Enn sem komið er gengur bara allt í lagi að starfa við þetta. Ég fæ alltaf nokkur gigg annað slagið,“ segir hann. Ísland sé lítið land en plánetan sé stærri en bara Íslandi. Hann segist hafa hitt nokkra töframenn sem hafi þetta að fullri atvinnu og að það sýni að allt sé hægt.

Arnúlfur segir að hann hafi verið að vinna við smíðar samhliða töfrunum. Honum hafi tekist að safna sér svolitlum aur, sem hann noti nú á meðan hann fótar sig á svelli listarinnar. „Ég ákvað að taka sénsinn og geri ekkert annað en að töfra eins og er.“ Hann segir að þetta veiti sér mikla lífsfyllingu. „Töfrabrögð veita mér og öllum öðrum svo mikla gleði og hamingju að þetta er 110% þess virði.“

Alltaf að bæta við sig

Töframaðurinn ungi segir aðspurður að það komi fyrir að hann geri mistök í brögðunum sínum en nú orðið gerist það ekki oft. „Nema í öllum nýju töfrabrögðunum sem ég er alltaf að bæta við mig,“ segir hann glaður í bragði. Hann framkvæmir aðallega spilagaldra en notast líka við reipi, peninga, svampbolta og aðra hversdagslega hluti í töfrabrögðunum sínum. „Fyrir mér eru töfrar gleðigjafi. Tilfinningin sem maður fær er maður upplifir og sér hið ómögulega er rosalega skemmtileg og sérstök. Ég hef oft séð fullorðið fólk ljóma alveg upp af undrun og aðdáun.“ Hann segir að með töfrum fái barnið innra með honum að skína. „Töfrar eru þannig meira er einungis einhver trix. Töfrar eru mín leið til þess að gefa af mér. Mín leið til þess að gleðja fólk.“

Arnúlfur er búsettur í Svíþjóð um þessar mundir en kemur heim til Íslands þann 14. September. Þá stendur mikið til. Hið íslenska töframannagildi (HÍT) stendur fyrir árlegri töfrasýningu. Nú verður hún haldin í tíunda sinn og fer að þessu sinni fram þann 19. október í Salnum í Kópavogi. „Svo ætla ég að hafa samband við nokkra staði sem ég held að gætu haft gaman að því að fá töframann í heimsókn,“ segir listamaðurinn að lokum.

Til gamans: Hér er bragðið sem á sínum tíma kveikti áhugann hjá Arnúlfi. Hann segir að í dag sé þetta nú með einfaldari töfrabrögðum, í sínum huga.

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=tScm-eZInBE&w=560&h=315]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru
Fókus
Fyrir 1 viku

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga