

Mannanafnanefnd hefur samþykkt að Sæmundur Pálsson, dansari, lífvörður og fyrrverandi lögreglumaður, fái hér eftir að heita Sæmi Rokk. Það er Morgunblaðið sem greinir frá þessu í dag.
Sæmundur sem er 82 ára gamall hafði áður fengið nafnið Sæmi samþykkt en í kjölfarið ákvað hann að ganga alla leið og fá að heita Sæmi Rokk. Það hefur nú verið samþykkt en nefndin komst að þeirri niðurstöðu að Rokk uppfyllti öll skilyrði og reglur varðandi málhefð og beygingarreglur íslenskrar tungu.
Sæmi er að vonum afar kátur með niðurstöðuna. „Þegar til kom reyndist þetta ekki vera enitt mál og það var gaman að fá jákvætt bréf frá mannanafnanefnd. Nú fer þessi beyting inn í Þjóðskrá og þá breytist nafnið í öllum formlegum pappírum,“ segir Sæmi Rokk í samtali við Morgunblaðið.