fbpx
Laugardagur 21.júní 2025
Fókus

Bergdisi, 9 ára, er alveg sama hvað öðrum finnst

Fléttan fékk að fjúka – Ætlar að gefa hárið

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 14. september 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég hef alltof mikið á tilfinningunni að við látum staðalímyndir stjórna okkur. Þess vegna hef ég reynt að ala börnin mín upp með það að leiðarljósi að þau geti verið þau sjálf burt séð frá því hvað mér eða öðrum finnst.“

Þetta segir Kristín Dögg Jónsdóttir móðir 9 ára stúlku sem lét á dögunum klippa á sig drengjakoll. Kristín vakti fyrst athygli á ákvörðun dóttur sinnar á Facebook síðunni Góða Systir. Þegar þetta er skrifað hafa yfir 3000 konur sett „læk“ á færsluna og fagna því ákvörðun stúlkunnar um að standa með sjálfri sér. Við myndir af dóttur sinni í færslunni skrifar Kristín Dögg:

„Í dag horfði ég á dóttur mína þar sem hún var í klippingu.. Síða hárið skildi fjúka og henni var alveg sama hvort að það sé norm eða ekki að vera stelpa með stutt hár. Hana langaði það bara.“

Í samtali við DV segir Kristín að hún hafi orðið mjög stolt af dóttur sinni, Bergdísi Birtu, þegar hún klippti á sér hárið. Bergdís tók ákvörðun um að prófa nýja klippingu eftir að hún sá unga konu á Símamótinu með stutt hár.

Kristín segir að það gæti reyndar spilað inn í að Bergdís er mjög hársár og vildi aldrei láta greiða sér. Nú finnst henni hinsvegar gaman að greiða sér. Hún segir jafnframt að dóttir sín hafi aldrei spáð neitt í tísku. Hún sé þó mjög sjálfstæð þegar kemur að fatavali og sjái algjörlega um að klæða sig sjálf. „Hún fer bara í það sem hana langar. Hvort sem að mömmunni finnst það flott eða ekki,“ segir Kristín hlæjandi og viðurkennir að hún hafi mjög gaman af fatastíl dótturinnar.

Bergdís, sem er í Árskógarskóla á Árskógsströnd, var búin að bíða í nokkrar vikur eftir því að fá að klippa hárið stutt áður en móðir hennar lét verða að því að fara með hana á hárgreiðslustofu. „Ég spurði hana oft þegar hún var komin í stólinn hvort hún væri viss og hún játti því alla leið.“

Yngri bróðir hennar, Marinó Steinn, sem er 7 ára, fékk að fara með á hárgreiðslustofuna og horfði dolfallinn með því þegar hárgreiðslukonan klippti fyrst fléttuna af Bergdísi og gerði svo þessa flottu klippingu á hana. „Þetta er búið að vera eintóm gleði síðan. Hún var búin að segja öllum að hún væri að fara í stutt og krakkarnir í skólanum biðu spennt eftir henni þegar hún mætti í skólann morguninn eftir.“

Líkt og áður hefur komið fram vakti innlegg Kristínar á Góðu systir mikla athygli. Þar kom meðal annars upp sú umræða hvað Bergís ætlaði að gera við hárið sem klippt var af. Glöggur lesandi benti Kristínu á að Bergdís gæti gefið hárið í hárkollugerð fyrir lítil börn. Að sjálfsögðu fannst Bergdísi það stórkostleg hugmynd. Því er næsta mál á dagskrá hjá mæðgunum að finna út hvert þær geta gefið hárið svo það komi að góðum notum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk
Fókus
Fyrir 4 dögum

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu
Fókus
Fyrir 1 viku

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir
Fókus
Fyrir 1 viku

Aðdáendur hneykslaðir á Sabrinu Carpenter – „Þú ert að niðurlægja þig“

Aðdáendur hneykslaðir á Sabrinu Carpenter – „Þú ert að niðurlægja þig“