fbpx
Þriðjudagur 05.maí 2026
Fókus

Aukin notkun snjalltækja ógnar framtíð íslenskunnar

Áreiti á ensku hefur aukist hjá börnum á máltökuskeiði

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 15. september 2016 10:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Aukin notkun snjalltækja er að ýmsu leyti jákvæð en hún hefur einnig hættur í för með sér fyrir íslenskuna“ segir Sigríður Sigurjónsdóttir prófessor í íslensku í grein sem birtist á Hugrás vefriti Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Sigríður og Eiríkur Rögnvaldsson prófessor fengu styrk frá Rannsóknarsjóði til að kanna stöðu íslenskunnar í stafrænu umhverfi. Fréttablaðið fjallaði um málið í morgun.

Sigríður segir í grein sinni að snjalltækjaþróun undanfarinna ára sé að mörgu leyti jákvæð. Til dæmis bendi ýmislegt til að notkun snjalltækja örvi sköpunargáfu og ímyndunarafl barna. Aftur á móti hafi mikil breyting orðið á samskiptum fólks með tilkomu stafrænna miðla og snjalltækja. Mikil notkun tækjanna hafi veruleg áhrif á samverustundir fjölskyldna. Sigríður bendir á að við mikla notkun snjalltækja dragi verulega úr mállegum samskiptum sem getur hindrað málþroska barna.

„Aukin notkun snjalltækja er að ýmsu leyti jákvæð en hún hefur einnig hættur í för með sér.“

Eiríkur segir í samtali við fréttablaðið það vera tilfinningu margra að áhrif tækni og snjalltækja séu mikil á máltöku. Þó séu ekki til neinar rannsóknir um það. Eiríkur segir að til að börn læri tungumál þurfi ákveðið mikið áreiti á því tungumáli. Hann bendir á þegar börn sem horfa mikið á myndbönd á Youtube eða spili gagnvirka tölvuleiki hafi enska mikil áhrif á þau.

Samkvæmt Saft könnun frá árinu 2013 sem rannsakaði netnotkun barna og unglinga kom í ljós að 62% íslenskra barna byrja að nota netið á aldrinum fimm til átta ára, niðurstöðurnar sýna einnig að sífellt fleiri börn byrja að nota internetið yngri en fimm ára. Það sem netnotkun fer oftast fram á ensku er líklegt að hún hafi mikil áhrif á yngstu málnotendurna, en börn eru móttækilegust fyrir máli fyrstu sex til níu árin.

Sigríður segir framtíð íslenskunnar undir máltöku barna komna. Það sé því ljóst að til að styrkja stöðu íslenskunnar sé nauðsynlegt að hugsa að málumhverfi barna á máltökualdri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Vinahópur sló í gegn á sýningu stórmyndarinnar Michael – Bíóferðin hófst á sannri íslenskri hefð

Vinahópur sló í gegn á sýningu stórmyndarinnar Michael – Bíóferðin hófst á sannri íslenskri hefð
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húsnæði „kaupmannsins á horninu“ í Vesturbæ til sölu

Húsnæði „kaupmannsins á horninu“ í Vesturbæ til sölu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Svali fann ástina í örmum Birnu

Svali fann ástina í örmum Birnu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 1 viku

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ragnhildur útskýrir gaslýsingu á mannamáli

Ragnhildur útskýrir gaslýsingu á mannamáli
Fókus
Fyrir 1 viku

Gerðu plötu á einni helgi

Gerðu plötu á einni helgi
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“