

Það þarf ekki að hafa nokkrar áhyggjur af því að íslenska landsliðið í fótbolta verði ekki í góðu skapi á HM í Rússlandi.
Landsliðið fékk nefnilega einkasýningu á Hilton í gær af gríni frá Sóla Hólm.
Sóli hefur farið sigurför um landið með sýningu sína og landsliðið fékk að njóta hennar í gær.
,,Ef einhver hefði sagt við þrettán ára bekkjartrúðinn Sóla Hólm að einn daginn yrði hann beðinn að mæta með eigin uppistandssýningu og flytja einkashow fyrir karlalandsliðið — nokkrum dögum áður en þeir fara út á HM, þá hefði ég brókað hann. En ég gerði það nú samt í kvöld og það er ótrúlega gefandi að leyfa þessum mönnum að vera in the presence of a great comedian. Mér finnst mikilvægt að geta gefið af mér til aðdáenda,“ skrifar Sóli á Instagram.
,,Ég þakka landsliðsmönnum og þeirra fjölskyldum fyrir frábæra kvöldstund. Auðvitað er heiðurinn allur minn. Áfram Ísland.“