fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Bjarni Benediktsson biðst afsökunar

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 9. janúar 2017 10:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Benediktsson_ÍNN„Jájá, þetta var kannski ekki alveg nákvæm tímalína hjá mér eins og ég fór yfir þetta,“ sagði Bjarni í samtali við fréttastofu RÚV í gærkvöldi. En kvöldið þar á undan hafði hann látið hafa eftir sér að starfshópur sem hann skipaði sem fjármála- og efnahagsráðherra til að gera skýrslu um eignir Íslendinga á aflandssvæðum hafi ekki skilað afurðinni af sér fyrr en eftir að þingstörfum var lokið. En nú hefur komið í ljós að skýrslan var komin í ráðuneytið fyrir þingslit sem voru þann 13. október. Þannig fékk Bjarni sérstaka kynningu á efni skýrslunnar 5. október.

„Þetta var kannski ekki nákvæm tímalína hjá mér og ég biðst nú velvirðingar á því,“ sagði Bjarni. Hann segir samt að birting skýrslunnar fyrir kosningar hefði ekki átt að breyta neinu. „En ég skal ekki taka það af neinum, einhverjum kann að líða þannig að hann hefði viljað fá að sjá þessa skýrslu fyrr, og það er bara á mína ábyrgð að ég hafi haldið þannig á málinu að ég hafi verið að hugsa þetta fyrst og fremst fyrir þinglega meðferð og síðan opinbera kynningu,“ segir Bjarni. „En það sem ég átti við, og var í huga mér, var það að þegar þessi skýrsla er kynnt fyrir mér, sem er þarna já fyrstu vikuna í október, þá standa yfir samningar um þinglok og það er beðið eftir því, og reyndar krafa stjórnarandstöðunnar að við ættum að vera löngu farin heim, og sú hugsun mín að málið gæti fengið efnislega meðferð í þinginu var í raun og veru óraunhæf á þeim tíma.“

Textinn „september 2016“ gerður illlesanlegur

Hann telur að birting skýrslunnar fyrir kosningar hefði litlu breytt. „En ég skal ekki taka það af neinum, einhverjum kann að líða þannig að hann hefði viljað fá að sjá þessa skýrslu fyrr, og það er bara á mína ábyrgð að ég hafi haldið þannig á málinu að ég hafi verið að hugsa þetta fyrst og fremst fyrir þinglega meðferð og síðan opinbera kynningu,“ segir Bjarni.

Blaðamaðurinn Jóhann Páll Jóhannsson fjallar um málið á Stundinni og hann skrifar: „Á bls. 15 í skýrslunni kemur skýrt fram að henni var skilað í september. Á forsíðunni má meira að segja finna orðin „september 2016“ – en af einhverjum ástæðum eru þau rituð með hvítu ósýnilegu letri sem sést aðeins ef tekið er utan um textann. Alþingi var hins vegar að störfum allt til 13. október. Þá hafði starfshópurinn löngu skilað ráðuneytinu skýrslunni.“

Fréttamaðurinn Ægir Þór Eysteinsson fjallar um málið á Ruv.is. Fréttastofa RÚV hafði tækifæri á því að spyrja Bjarna Benediktsson út í þetta mál að textinn „september 2016“ hafi verið hvíttaður og gerður illlesanlegur. Ægir Þór skrifar: „Fréttastofa spurði Bjarna hvort hann hafi látið gera þetta. „Nei, það gerði ég svo sannarlega ekki. Ég hef ekki hugmynd um það hvers vegna eitthvað slíkt kann að hafa átt sér stað,“ svaraði hann.“

Börkur Gunnarsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins