fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar verður kynnt á þriðjudag

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 8. janúar 2017 15:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benedikt_Bjarni_ÓttarrNý ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar verður kynnt á þriðjudag. Búast má við að sama dag verði efnt til fundar í ríkisráði á Bessastöðum þar sem Sigurður Ingi Jóhannsson kveður sem forsætisráðherra og ríkisstjórn hans og við tekur fyrsta ráðuneyti Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra.

Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins var greint frá því að búið sé að kalla út stofnanir flokkanna þriggja til að leggja blessun sína yfir samstarfið og stjórnarsáttmálann.

Sex hundruð manna flokksráð Sjálfstæðisflokksins kemur saman annað kvöld og þá munu stjórnir Bjartrar framtíðar og ráðgjafaráð Viðreisnar einnig funda í sama tilgangi.

Formenn flokkanna þriggja hitta þingmenn í dag einslega og ræða skipan í ráðherrastóla og bera svo formlegar tillögur undir þingflokkanna á morgun eða þriðjudag.

Benedikt Jóhannesson verður fjármála- og efnahagsráðherra í hinni nýju ríkisstjórn og Óttarr Proppé verður heilbrigðisráðherra, samkvæmt þvi sem Bloomberg-fréttastofan greinir frá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins