fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Ekki nokkur maður ánægður með væntanlegt samstarf: Ólundarstjórn ef af verður

Ritstjórn Eyjunnar
Laugardaginn 7. janúar 2017 08:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Valur Gíslason, varaformaður Vinstri grænna. Mynd/Pressphotos.biz
Björn Valur Gíslason, varaformaður Vinstri grænna. Mynd/Pressphotos.biz

„Mér er til efs að áður hafi verið mynduð ríkisstjórn hér á landi af jafn miklu áhugaleysi og sú sem nú er í smíðum. Það virðist hreinlega ekki nokkur maður vera ánægður með afurðina,“ segir Björn Valur Gíslason, varaformaður Vinstri grænna um þá ríkisstjórn sem nú er í smíðum milli Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar.

„Það vekur athygli að formenn flokkanna þriggja halda spilunum þétt að sér og forðast að upplýsa bakland sitt um þróun mála. Lengst í því gengur þó formaður sjálfstæðisflokksins sem mætir ýmist einn í stjórnarmyndunarviðræðurnar eða með aðstoðarmann sinn með sér. Þingmenn flokksins virðast lítið sem ekkert vita umfram það sem fram kemur í fréttum og geta illa leynt óánægju sinni. Sjálfur er Bjarni hættur að mæta í viðtöl vegna málsins og lætur þau eftir formönnum hinna flokkanna tveggja,“ segir Björn Valur ennfremur.

Og hann bætir við á vefsíðu sinni:

„Ekki er að merkja almenna ánægju meðal almennings með væntanlega ríkisstjórn þeirra frænda Bjarna og Benedikts. Þvert á móti virðist eiginlega enginn vera ánægður og hvergi sjáanleg merki um að nokkur maður sé að biðja um þá ríkisstjórn sem verið er að berja saman. Það er vel merkjanleg ólund bæði meðal stjórnmálamanna og almennings um málið. Þetta verður ólundarstjórn ef af verður.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins