„Manni sýnist líka að Bjarni hafi svo góð tök á flokki sínum að hann geti ráðið hvert hann heldur – að áköf leiðaraskrif Davíðs Oddssonar í Morgunblaðinu stökkvi af honum eins og vatn af gæs,“ segir Egill Helgason, sjónvarpsmaður, í Silfri Egils. En þar fer Egill yfir stöðuna eins og hún blasir við honum í dag. Hann heldur að harkaleg leiðaraskrif í Morgunblaðinu (sem að mati Egils eru eftir Davíð Oddsson) virki jafnvel öfugt á Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins, geri honum erfiðara að hætta við samstarfið við Viðreisn og Bjarta framtíð. Ef Bjarni fari að haga sér í samræmi við leiðaraskrif Moggans geti Bjarni farið að virka eins og strengjabrúða Davíðs, sem Egill kallar 13% manninn og vísar þar til þess að Davíð Oddsson fékk 13% í forsetakosningunum.
Að mati Egils eru allar hugmyndir um vinstri stjórn horfnar út í veður og vind. Þar með sé engin ríkisstjórn í kortunum nema með Sjálfstæðisflokknum. Auk þess sé stjórnarmyndun líklega komin það langt að ekki verði aftur snúið. Svo segir hann:
Benedikt og Óttarr Proppé hafa límt sig fast saman. Sumum er bandalag þeirra ráðgáta – næsta skrefið hlýtur nánast að vera að flokkar þeirra gangi í eina sæng. Benedikt er gagnrýndur fyrir það í sínum eigin flokki að hafa spilað sóló, ekki ráðfært sig við samherjana.
En Viðreisn þarf illa á því að halda að komast í stjórn. Líklegt er að Viðreisn myndi fara illa út úr kosningum í vor – og þá myndi Benedikt nær örugglega detta af þingi eftir stutta veru. Flokkurinn virðist heldur ekki hafa neinn áhuga á því að vera í stjórnarandstöðu; innan hans er fólk sem er vant að stjórna, lætur sér ekki detta í hug að það sé eftirsóknarvert að móast í andstöðu.
Reyndar hefur virst eins og aðalkrafa Viðreisnar eftir kosningarnar sé aðhald í ríkisfjármálum. Þetta hefur verið stefna Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn, svo ekki ber beinlínis mikið þarna í milli. Aðalspurningin virðist vera hversu Benedikt og Óttarr selja sig dýrt – eða ódýrt í sjávarútvegs- og evrópumálunum.
Þarna gæti verið möguleiki að slitnaði upp úr, en eins og komið er virðist ekki líklegt að Bjarni hlaupist burt, þótt það kunni að vera ákveðin freisting fyrir hann að tala við Vinstri græn og Framsókn. Þar er draumaríkisstjórn Davíðs.
Milli Vinstri grænna og Framsóknarflokksins hafa verið viðræður, enda vöknuðu Vinstri græn upp við þann vonda draum að þau yrðu utan ríkisstjórnar næsta kjörtímabil – eftir að hafa virst eiga nokkuð greiða leið inn í stjórn framanaf. Þetta gæti orðið löng og leiðinleg vist. Vinstri græn hafa lika áttað sig á því að þau eiga miklu meira sameiginlegt með Framsóknarflokknum en Viðreisn nokkurn tíma.