fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Eyjan

Píratar dala – Framsókn og Samfylking á uppleið

Ari Brynjólfsson
Mánudaginn 20. febrúar 2017 14:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Jakobsdóttir formaður VG og Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Samsett mynd: DV/Sigtryggur Ari

Vinstri græn mælast með mest fylgi íslenskra flokka í nýrri könnun MMR, mælast Vinstri grænir með 27% fylgi sem er sama fylgi og flokkurinn mældist með í síðustu könnun. Sjálfstæðisflokkurinn mælist sem fyrr næst stærsti flokkurinn með 24,4% fylgi í könnuninni sem var gerð dagana 10. til 15. febrúar. Þó skal hafa í huga að munurinn milli flokkanna er innan vikmarka og því ekki hægt að fullyrða hvor flokkurinn nýtur meira fylgis þjóðarinnar.

Fylgi Pírata minnkaði um 1,7% milli mælinga og mælist nú 11,9%. Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin sækja í sig veðrið og mælast flokkarnir með 10,7% og 10% fylgi, sem er eilítið meira en í síðustu könnun sem var gerð í byrjun mánaðarins.

Fylgi Viðreisnar mældist nú 6,2% og mældist 5,6% í síðustu könnun, Björt framtíð mælist nú með 5,4%, sama fylgi og í síðustu könnun. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 34,9%. Fylgi annarra flokka mældist 4,3% samanlagt, af þeim mældist Flokkur fólksins með 2,6% fylgi.

Alls voru spurðir 904 einstaklingar, 18 ára og eldri, valdir af handahófi úr þjóðskrá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Flýr Ásdís Kristjánsdóttir Kópavog eins og Rósa Guðbjartsdóttir flúði úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar?

Orðið á götunni: Flýr Ásdís Kristjánsdóttir Kópavog eins og Rósa Guðbjartsdóttir flúði úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar?
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ragnar Þór Ingólfsson: Grímulaus sérhagsmunagæsla stjórnarandstöðunnar – trúnaðarupplýsingum deilt með hagsmunaaðilum

Ragnar Þór Ingólfsson: Grímulaus sérhagsmunagæsla stjórnarandstöðunnar – trúnaðarupplýsingum deilt með hagsmunaaðilum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins