fbpx
Föstudagur 18.júlí 2025
Eyjan

Lögmaður kallar dómsmálaráðherra „frjálshyggjuhegra“: „Ekki skemma það sem vel er gert“

Ari Brynjólfsson
Mánudaginn 6. mars 2017 10:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helga Vala Helgadóttir héraðsdómslögmaður. Mynd/DV

Helga Vala Helgadóttir héraðsdómslögmaður gagnrýnir Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra og segir tómt mál að tala um samkeppnisrekstur í tilviki RÚV þar sem enginn annar fjölmiðinn sinnir menningar- og fræðsluhlutverki RÚV. Sigríður sagði um helgina það vera fráleitt að ríkið reki fjölmiðil og sé í samkeppnisrekstri:

„Kannski var allt í lagi að halda þessu úti þegar það var heil­mik­ið verk að kaupa tæki til útsend­ing­ar. Sú rök eru ekki lengur til stað­ar­, það getur hver sem er gert þetta og þar fyrir utan er fullt af fjöl­miðl­u­m ­starf­rækt í land­inu. Það er ekki eins og þetta ágæta fólk sem vinnur á RÚV myndi hverfa þótt ríkið mynd­i hætta að reka mið­il­inn,“

sagði Sigríður og bætti við:

Þetta er sam­keppn­is­rekstur og ­ríkið á ekki heima í slíku umhverf­i.

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra.

„Af hverju er það þá ekki gert?“

Í pistli sem Helga Vala skrifar í Fréttablaðið í dag segir hún:

„Enn einu sinni fáum við fregnir af frjálshyggjuhegrum sem umfram allt vilja leggja Ríkis­útvarpið niður. Segja fráleitt að ríkið sé að standa í slíkum rekstri því aðrir geti vel sinnt því.
En af hverju er það þá ekki gert? Hvers vegna er engin útvarpsstöð á Íslandi á pari við það sem gert er á Rás 1 og 2? Hvernig stendur á því að ekki ein einasta útvarpsstöð sinnir öðru en dægurmálum og íþróttum? Spilar lög af geisladiskum og opnar fyrir símann?“

Segir hún samkeppnisaðila RÚV ekki fjalla um sögulega hluti, ítarlega um hljómsveitir eða tónverk, flytja ekki útvarpsleikrit, útvarpssögur eða flakka um borg og bæi með sagnfræðingi sem tjáir sig um sögu húsa og gatna. Hinar stöðvarnar sinni sínu hlutverki sem afþreyingar­stöðvar vel, enda ekki annars krafist af þeim:

Það er þannig tómt mál að tala um samkeppnisrekstur. Það sinnir enginn annar menningar- og fræðsluhlutverki Ríkisútvarpsins. Það er líklega þess vegna sem 70% landsmanna treysta Ríkisútvarpinu á meðan næsti fjölmiðill fyrir neðan er með 40% traust og aðrir enn neðar. Ekki skemma það sem vel er gert. Það er nóg samt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sakar stjórnarandstöðuna um vanþekkingu og rekur sögu 71. gr.

Sakar stjórnarandstöðuna um vanþekkingu og rekur sögu 71. gr.
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Fullorðið fólk þarf að kunna að taka tapi í kosningum og una öðrum að fara með völdin“

„Fullorðið fólk þarf að kunna að taka tapi í kosningum og una öðrum að fara með völdin“