fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Eyjan

Vilhjálmur spyr: Hví í ósköpunum gera Alþingismenn ekkert í þessu?

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 27. apríl 2017 20:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA.

Formaður Verkalýðsfélags Akraness, Vilhjálmur Birgisson, skrifar í pistli á Pressuna um hækkanir á skuldum heimilanna. Tilefni þess eru nýjar verðbólgutölur Hagstofu Íslands sem sýna að verðbólgan hér er einungis 1,9% á tólf mánaða tímabili. Vilhjálmur segir að þetta þýði, á mannamáli, að „verðtryggðar skuldir heimilanna hafa hækkað um 38 milljarða á síðustu 12 mánuðum en ef fjárskuldbindingar heimilanna myndu miða við neysluvísitölu án húsnæðisliðar þá hefðu skuldir heimilanna lækkað um 36 milljarða“.

Verkalýðsleiðtoginn vill meina að hafðir hafi verið af heimilunum 74 milljarðar króna og hækkun á húsnæðisverði og leiguverði sem er ástæða verðbólgunnar enda sé „bullandi verðhjöðnun“ í öðrum þáttum neysluvísitölunnar.

Til að almenningur átti sig á hvað þetta þýðir í raun og veru fyrir venjulegar fjölskyldur sem eru til dæmis með 30 milljóna króna húsnæðislán þá þýðir 1,9% hækkun neysluvísitölu hækkun á slíku láni um 570.000 kr. á ári. En ef húsnæðisliðurinn væri ekki inni í lögum um vexti og verðtryggingu þá hefði 30 milljóna króna lán lækkað um 540.000 kr. á einu ári. Þetta þýðir í raun og veru mismun sem nemur 1.110.000 kr,

segir Vilhjálmur í pistlinum á Pressunni.

Hann rifjar upp tillögu sem lögð var fram af Verkalýðsfélags Akraness á 42. þingi Alþýðusambands Íslands en þar sagði:

„42. þing Alþýðusambands Íslands skorar á stjórnvöld og Alþingi að vísitala til neysluverðs til verðtryggingar skv. lögum um vexti og verðtryggingu verði hér eftir reiknuð út án húsnæðisliðar.“

Vilhjálmur er allt annað en sáttur með að hækkun fasteignaverðs standi að baki hækkunar verðbólgu og þetta sé ekki ólíkt því sem var hér á landi fyrir hrun. Hann segir þingmenn standa aðgerðalausa hjá þegar fjármagn er flutt frá heimilum landsins til fjármálaaflanna.

Það er kominn tími til að stjórnmálamenn standi við stóru orðin og taki stöðu með íslenskum almenningi í þessu landi og hætti þessu skefjalausa dekri við fjármálaöflin enn og aftur.

Elsa Lára Arnardóttir þingmaður Framsóknarflokksins. Mynd/DV

Málið dó á þingi

Elsa Lára Arnardóttir þingmaður Framsóknarflokksins blandar sér í umræðuna á Facebook síðu Vilhjálms og segir þar:

Ég veit ekki betur en að allir þingmenn Framsóknarflokksins hafi lagt fram þingmál sem situr fast inni í efnahagsnefnd þingsins því áhugi fyrir málinu í samfélaginu virðist vera mjög lítill, það má sjá á innsendum umsögnum um málið sem eingöngu voru 4 af 36 beiðnum. Ef fáar umsagnir berast, þá gerist það nánast sjálfkrafa að mál eru látin niður falla. Þessu máli var vísað 1. febrúar til efnahagsnefndar og þetta er önnur atlaga okkar að þessu máli, en það dó einnig í fyrra skipti.

Vilhjálmur segir í athugasemd að mun einfaldara sé að breyta lögum um vexti og verðtryggingu eins og kom fram í tillögunni sem lögð var fram á 42. þingi ASÍ.

Ég held eins og ég hef líka nefnt við þig að það sé mun flóknara og erfiðara að koma í gegnum þingið að taka upp samræmdu evrópsku vísitöluna. Hin leiðin, að breyta lögum um vexti og verðtryggingu er mun einfaldari og skjótari leið og því skora ég á ykkur að leggja fram frumvarp sem kveður á um að vísitala til neysluverðs til verðtryggingar skv. lögum um vexti og verðtryggingu verði hér eftir reiknuð út án húsnæðisliðar og fróðlegt verður að sjá hvaða flokkar og þingmenn geta verið á móti slíkri tillögu,

segir Vilhjálmur í svari til Elsu Láru.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Svarthöfði skrifar: Undur veraldar og afhjúpunin

Svarthöfði skrifar: Undur veraldar og afhjúpunin
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Hefndaráráttan ríkir í Sjálfstæðisflokknum – ekki í öðrum flokkum

Orðið á götunni: Hefndaráráttan ríkir í Sjálfstæðisflokknum – ekki í öðrum flokkum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Silja „missti andlitið“ vegna ummæla Bjarna um leigjendur Félagsbústaða – Myndband

Silja „missti andlitið“ vegna ummæla Bjarna um leigjendur Félagsbústaða – Myndband
Eyjan
Fyrir 1 viku

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi