Össur Skarphéðinsson heiðurspírati og fyrrverandi ráðherra segir Pírata hafa verið fljóta að snúa baki við hugmyndinni um Nýja Ísland. Það hafi verið tákn um gamla Ísland að skipa varaþingmann í bankaráð Seðlabankans en það hafi Píratar gert með því að skipa Þór Saari. Vísar hann í grein Smára McCarthy þingmanns Pírata sem birt var á Eyjunni í gær, þar sagði Smári meðal annars að samkennd skorti á Alþingi, eitthvað þurfi að breytast og það sé gott að ný kynslóð þingmanna hafi minni áhuga á „gömlu pólitíkinni“:
Gömlu refirnir munu aldrei breyta því sem þarf að breyta. Þeir eru ekki áhugamenn um bætt vinnubrögð. Þeirra markmið er að viðhalda núverandi kerfi, ekki að ég skilji af hverju,
sagði Smári. Össur segir á Fésbók að Smári sé líklega skærasta vonarstjarna Pírata í dag:
Sjálfur er Smári nýbúinn að taka þátt í því að senda varaþingmann flokksins inn i bankaráð. Í árdaga var það í augum Pírata tákn um Gamla Ísland,
því vilji menn vita hvernig Nýja Ísland líti út í augum forsætisráðherraefnisins Smára og ræddi hann það við kettina sína
„Í morgunþusi mínu við kettina á Vestó setti ég fram þá kenningu að þetta mætti skýra sem dæmi um „premature senile decay“ hjá pólitískri hreyfingu. Þeir eru mér yfirleitt ósammála svo þetta fékk takmarkaðan hljómgrunn. – Nýju refirnir kunna alla vega að taka heljarstökk inn í framtíðina.“
„Við kusum þó hagfræðinga“
Smári segir þetta rugl í Össurri:
Þetta er rugl í þér, Össur. Þór Saari er ekki varaþingmaður Pírata, nema að það sé litið svo á að allir á listum allra flokka séu varaþingmenn. Hann hefur ekki fengið kjörbréf. Hins vegar er hann afar fær hagfræðingur með mikla reynslu bæði úr Seðlabanka Íslands, OECD og víðar. Hann er vissulega ekki öllum að skapi, en það kemur færni hans sem hagfræðings ekki neitt við,
segir Smári og bæti við að ef þetta sé besta dæmið um að Píratar haldi í gamlar pólitískar hefðir þá séu þeir í góðu formi:
„Við kusum þó hagfræðinga sem bæði aðalmann og varamann í þessu, og það alveg einstaklega færa hagfræðinga sem vinna ekki blint eftir meginstraumskenningum þeirra monetarista sem hafa haldið Seðlabankanum í gíslingu um áraraðir.“
Í umræðunum var komið inn á deilur í þingflokki Pírata, en sem kunnugt er sagði Ásta Guðrún Helgadóttir af sér sem þingflokksformaður vegna ósættis um hlutverk formannsins. Helgi Hrafn Gunnarsson fyrrverandi þingmaður flokksins svaraði fyrir það:
Það er ósætti í öllum þingflokkum. Þeir eru misjafnlega gjarnir á að fela það og takast á við það með ólíkum hætti.
Viktor Orri Valgarðsson varaþingmaður Pírata tók svo fram að Smári væri ekki forsætisráðherraefni Pírata, það hefði aldrei verið ákveðið og flokkurinn hafi ekki stefnt sérstaklega á það embætti. Þar að auki hefði skipun Þórs Saari í bankaráð verið á faglegum grunni.
Þór Sarri sjálfur beindi svo orðum sínum að Össurri og sagði:
Það er ferskt loft í hinu nýja bankaráði og enginn þar frá Samfó. Er samhengi þar á milli?