Valgerður Sverrisdóttir og Jón Sigurðsson, bæði fyrrverandi formenn Framsóknarflokksins, beittu sér gegn Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni á flokksþingi Framsóknarflokksins síðasta haust. En sem kunnugt er var Sigmundur felldur úr formannsstóli á flokksþinginu af Sigurði Inga Jóhannssyni. Þetta kemur fram í viðtali við Sigmund í Morgunblaðinu í dag.
Segir hann að á flokksþinginu hafi hann áttað sig á að eitthvað mikið var í gangi þegar hann sá Jón og Valgerði þar ásamt stórum hópi fólks, en þau höfðu mörgum árum fyrr hætt formlegum afskiptum af flokksstarfi og vissi Sigmundur að þau væru honum andsnúin. Stuðningur þeirra við Sigurð Inga hafi eingöngu snúist um að losna við sig segir Sigmundur:
Og núna, eftir miðstjórnarfundinn, þar sem fram kom mikil óánægja með stefnu og formann flokksins, tel ég að þau hafi flest yfirgefið Sigurð Inga.
Sigmundur Davíð er gestur Björns Inga Hrafnssonar í þættinum Eyjan sem sýndur er kl.21 í kvöld á ÍNN.