fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Eyjan

Smári McCarthy: Gömlu refirnir munu aldrei breyta því sem þarf að breyta

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 25. maí 2017 10:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 

Smári McCarthy þingmaður Pírata

Smári McCarthy alþingismaður Pírata skrifar:

Alþingi skortir samkennd

Nú þegar líður að lokum þingstarfa fyrir sumarið er ágætt að líta yfir síðustu mánuði og meta árangurinn. Það er ekki hægt að segja að hann hafi verið mikill. Nokkur mál ríkisstjórnarinnar hafa farið í gegn, sum í einhverri sátt en önnur alls ekki. Búið er að brjóta á réttindum allra ríkisstarfsmanna, margra ellilífeyrisþega, og flestra hælisleitenda. Fjármálastefna hefur verið sett sem felur ekki í sér neina stefnu aðra en áframhaldandi niðurskurði. Fjármálaáætlun er nú að fara í aðra umræðu sem er mótsagnarkennd, illa unnin, og hefur enga framtíðarsýn. Það er ekki bara mitt álit, heldur álit velflestra þeirra sem veittu þinginu umsögn um málið. Vinnubrögðin eru hreinlega afleit.

Á meðan á þessu hefur staðið hafa ótal mál setið á hakanum. Kerfisumbótatillögur Pírata um upplýsinga- og sannleiksskyldu ráðherra, um að þingmálahalinn haldist milli þinga, um íbúakosningar og um að koma skipulagi á tæknimálum ríkisins hafa ekki hreyfst úr stað. Tillaga okkar um að lækka laun þingmanna og láta þau fylgja almennri launaþróun er fast í nefnd. Tillaga okkar um að stækka kvótapottinn til að tryggja smábátum veiðileyfi á handfærum allt strandveiðitímabilið situr sömuleiðis pikkfast. Þá eru ótalin tugir annara góðra mála, bæði Pírata og annarra flokka, sem væri eðlilegt að fengu þinglega meðferð. Það væri skárri nýting á tíma en endalausir einkavæðingartilburðir.

Undanfarið hef ég verið að brjóta heilann yfir því hver vandinn raunverulega sé, hvers vegna allt stendur í stað. Ég átti þess kost nú um helgina að fara til Kyiv í Úkraínu á ráðstefnu þingmanna frá rúmlega fimmtíu löndum, þar sem ég spurði marga hvernig málum væri háttað hjá sér. Allir höfðu eitthvað yfir að kvarta, en það var mikill munur á málavinnsluhraða. Flest þing hafa einhverja undarlega siði og skrýtnar venjur, en flest hafa líka eitthvað gott. Við getum lært margt með meiri samskiptum ─ og mun ég í því samhengi leggja til í haust að Ísland gangi til liðs við Open Government Partnership.

En stærsta atriðið sem virðist vanta á Alþingi er einhverskonar samkennd. Ég á ennþá eftir að upplifa það, sitjandi í þingsalnum, að allir séu að vinna að sama markmiði ─ að beturumbæta Ísland í þágu allra. Mig langar til að trúa því, en ég bara get það ekki. Vandinn er nefnilega sá að allt of oft heyrast raddir slíkra sérhagsmuna að manni líður eins og óboðnum gesti í þjófabæli. Á móti kemur að það eru velflestir þingmenn sem eru að reyna að bæta Ísland. Það fer bara allur tíminn í að glíma við vondar tillögur, forneskjulegar reglur, pólitískri valdbeitingu og klækjabrögð, í staðinn fyrir málefnalega umræðu og markvissan árangur.

Eitthvað þarf að breytast, en það er líka markmiðið. Óvenjumargir eru nýjir á Alþingi eftir síðustu kosningar, og flestir hafa góðar hugmyndir um hvernig hlutir mættu betur fara. Nýja kynslóðin hefur minni áhuga á gömlu pólitíkinni, sem er gott. Gömlu refirnir munu aldrei breyta því sem þarf að breyta. Þeir eru ekki áhugamenn um bætt vinnubrögð. Þeirra markmið er að viðhalda núverandi kerfi, ekki að ég skilji af hverju.

En við nýju þingmennirnir höfum öll verið að læra. Sagt er að enginn verði raunverulega skilvirkur í nýju starfi fyrr en eftir minnst sex mánuði. Nú er ég búinn að fá aðeins að læra inn á þetta hlutverk sem mér var falið, og er bjartsýnn þrátt fyrir vondu vinnubrögð fortíðarinnar að við getum náð meiri árangri á komandi árum.

Greinin birtist fyrst í Suðra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Margur verður af aurum api

Óttar Guðmundsson skrifar: Margur verður af aurum api
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir Moggann fara með fleipur – „Langt því frá fordæmalaus“

Segir Moggann fara með fleipur – „Langt því frá fordæmalaus“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist þreyttur á skítadreifurum Sjálfstæðisflokksins – „Eina sem núverandi dómsmálaráðherra gerði var að þrífa upp“

Segist þreyttur á skítadreifurum Sjálfstæðisflokksins – „Eina sem núverandi dómsmálaráðherra gerði var að þrífa upp“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra

Orðið á götunni: Formaður Samtaka í sjávarútvegi segir af sér – klofningur í röðum sægreifa vegna hroka og græðgi sumra þeirra