Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður Vinstri grænna gagnrýnir Bjarna Benediktsson forsætisráðherra harðlega og segir að með viðbrögðum sínum við niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála hafi Bjarni sýnt hroka valdmannsins. Í byrjun mánaðarins var greint frá því að nefndin telji að Bjarni hafi í starfi sínu sem fjármálaráðherra brotið gegn jafnréttislögum þegar hann skipaði í starf skrifstofustjóra skrifstofu opinberra fjármála í ágúst síðastliðnum.
Olli úrskurðurinn nokkru fjaðrafoki þar sem Bjarni hafði árið 2011 sem þingmaður stjórnarandstöðu hvatt til afsagnar Jóhönnu Sigurðardóttur úr stóli forsætisráðherra vegna sambærilegrar niðurstöðu sömu nefndar. Þegar niðurstaða nefndarinnar nú var borin undir Bjarna sagði hann að hann hafi fylgt sannfæringu sinni við ráðninguna:
Ég fylgdi bara minni sannfæringu sem ég öðlaðist í gegnum mitt ferli og stend alveg við það. En ég ætla ekki að gera lítið úr því að ef nefndin kemst að þessari niðurstöðu þá verður maður bara að horfast í augu við það,
sagði Bjarni í samtali við RÚV fyrr í þessum mánuði. Í pistli í Fréttablaðinu í dag rifjar Kolbeinn upp fund HeForShe í New York þar sem Bjarni mætti með bleika köku sem hann hafði bakað sjálfur. Í pallborðsumræðum ræddi hann svo stöðu jafnréttismála og benti meðal annars á að búið sé að festa þau mál í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, þar á meðal sé unnið að frumvarpi um jafnlaunavottun hjá stærri fyrirtækjum:
„Við erum kannski númer eitt í heiminum, en verkinu er ekki lokið,“
sagði Bjarni. Kolbeinn segir að hann hafi sjálfur setið fund kvennanefndar SÞ í New York vikuna á eftir Bjarna og hafi Íslendingarnir verið nokkuð stoltir af sínum manni:
Klístrað kremið hafði þó varla þornað á kökunni þegar úrskurður kærunefndar jafnréttismála barst um það að Bjarni hefði brotið jafnréttislög þegar hann skipaði karl í stöðu skrifstofustjóra fram yfir konu. Raunverulegur boðberi jafnréttis hefði tekið slíkum úrskurði af auðmýkt. Allir geta jú gert mistök, en það segir mikið um karakterinn hvernig fólk tekur á þeim. Og það segir mikið um það hversu mikið maður meinar það sem maður boðar, hvernig maður tekur á því að hafa brotið gegn eigin boðskap,
segir Kolbeinn og bætir við:
Og skemmst er frá því að segja að Bjarni féll algjörlega á því prófi. Í stað auðmýktar og vilja til bóta, birtist hroki valdsmannsins. Þetta skipti allt saman ósköp litlu máli í huga Bjarna, í stað sjálfsgagnrýni gagnrýndi hann forvera sína. Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað.
Kolbeinn segir að skipan skrifstofustjórans velti upp ýmsum spurningum. Það vekji furðu að stjórnunarreynsla sé til einskis metin við ráðningu í stjórnunarstöðu. Segir Kolbeinn að svo virðist sem konur geti ekki einu sinni notið þess að hafa orðið sér úti um reynslu, reynslan sé að engu metin og karlarnir ráða karlana:
Ég hvet Bjarna Benediktsson til að hlusta á ræðuna sína frá New York, hún er til á netinu. Það er til lítils að skreyta köku með stolnum jafnréttisfjöðrum á alþjóðlegum viðburðum, en brjóta jafnréttislög heima fyrir eins og ekkert sé.