fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Eyjan

Fjöldauppsagnir verða að veruleika – 86 missa vinnuna á Akranesi

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 11. maí 2017 15:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tilkynnt hefur verið um uppsögn allra starfsmanna í botnfiskvinnslu HB Granda á Akranesi frá og með 1. september. Vinnslan verður flutt til Reykjavíkur og stefnt er að því að bjóða þeim 86 sem sagt hefur verið upp önnur störf hjá fyrirtækinu.

Á vefsíðu HB Granda birtist eftirfarandi fréttatilkynning fyrir skömmu undir yfirskriftinni „HB Grandi mun sameina botnfiskvinnslu“:

Á fundi trúnaðarmanna HB Granda og forsvarsmanna HB Granda á Akranesi 11. maí 2017, var farið yfir áform um að leggja af fiskvinnslu í botnfiskvinnslu sinni á Akranesi. Að höfðu samráði við fulltrúa starfsmanna og stéttarfélaga hafa staðið yfir viðræður við Akraneskaupstað og einnig hafa fengist upplýsingar frá Faxaflóahöfnum og Reykjavíkurborg. Viðræðurnar hafa nýst vel til gagnkvæmra upplýsinga og munu gagnast aðilum til framtíðar.

 

Niðurstaða viðræðna hefur þó ekki breytt þeim áformum HB Granda að sameina botnfiskvinnslu félagsins á Akranesi við botnfiskvinnslu félagsins í Reykjavík þann 1. september næstkomandi.

 

Hjá HB Granda og dótturfélögum á Akranesi starfa 270 manns, þar af vinna 86 við botnfiskvinnsluna sem fá uppsagnarbréf fyrir næstu mánaðamót. Samtímis og jafnframt verður starfsfólki boðið að sækja um önnur störf hjá HB Granda og dótturfélögum í Reykjavík og á Akranesi. Vonir standa til að hægt verði að bjóða öllu starfsfólki sem þess óskar starf við hæfi.

 

Starfsfólk sem ekki fær vinnu við hæfi býðst aðstoð við atvinnuleit á vegum HB Granda. HB Grandi mun hafa samráð við trúnaðarmenn og stéttarfélög þeirra.

 

HB Grandi rekur eftir sem áður uppsjávarvinnslu, fiskimjölsverksmiðju og dótturfélögin Norðanfisk og Vignir G. Jónsson á Akranesi. Félagið mun leggja kraft í að efla þessar rekstrareiningar og fullvinnslu sjávarafurða á Akranesi.

 

Forráðamenn Akraneskaupstaðar og HB Granda munu halda áfram viðræðum um að standa að frekari uppbyggingu atvinnulífs á Akranesi. Einn liður í því er að fulltrúar Akraneskaupstaðar í Faxaflóahöfnum beiti sér fyrir því að ráðist verði í nauðsynlegar viðhaldsaðgerðir á Akraneshöfn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Hvernig var passað upp á gögnin sem láku frá sérstökum saksóknara?

Þorbjörg Sigríður: Hvernig var passað upp á gögnin sem láku frá sérstökum saksóknara?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Upplifði höfnun eftir kosningarnar og fannst það ósanngjarnt – Segir að síðasta ríkisstjórn hafi setið of lengi

Upplifði höfnun eftir kosningarnar og fannst það ósanngjarnt – Segir að síðasta ríkisstjórn hafi setið of lengi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi