fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Eyjan

Á enn eftir að hitta einstakling sem telur ástandið viðunandi

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 11. maí 2017 15:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Næstkomandi laugardag klukkan 12 verður efnt til fundar í Iðnó um stöðu aldraðra sem búa heima en þurfa engu að síður á aðstoð að halda. Fundurinn er hluti af röð sem Ögmundur Jónasson fyrrverandi þingmaður og ráðherra stendur fyrir. Spurning fundarins að þessu sinni er hvort öldruðum í heimahúsum sé sinnt sem skyldi.

Í grein í Morgunblaðinu í dag segir Ögmundur að hann eigi eftir að hitta einstakling sem telji ástandið í þessum efnum viðunandi:

Ég hef séð til verka fólks sem sinnir heimahjúkrun og aðhlynningu í heimahúsum og sannfærst um að þar er upp til hópa afar hæft og gott fólk. En ég hef líka fengið að kynnast álaginu sem þetta fólk starfar undir og hver kjör því eru búin,

segir Ögmundur. Erfitt verði að manna þjónustuna á komandi mánuðum og spyr hann hvort stefna stjórnvalda, að hafa fólk heima hjá sér sem lengst, sé nógu vel framkvæmd:

Hjálparþurfi fólk á tíræðisaldri í heimahúsi í Reykjavík getur að hámarki fengið aðstoð við böðun einu sinni í viku. Er það þannig sem við viljum hafa þetta? Er þetta dæmi um framangreinda stefnu – allir heima sem lengst – í framkvæmd?

Hér má sjá dagskrá fundarins á laugardaginn:

Gunnar Alexander Ólafsson, heilsuhagfræðingur fjallar um aldraða og kerfið og spyr: Að búa sem lengst heima … er það valkostur?

Anna Þrúður Þorkelsdóttir, þjóðfræðingur og fyrrv. form Rauða kross Íslands svarar eftirfarandi spurningu: Hafa breyttar áherslur í þjónustu skilað öldruðum betra lífi?

Þórunn S. Einarsdóttir, félagsráðgjafi veltir eftirfarandi upp: Hvernig höldum við reisn okkar á gamals aldri?

Fundarstjóri er Ögmundur Jónasson

Fundinn stendur í rúman klukkutíma og er opinn öllum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Hvernig var passað upp á gögnin sem láku frá sérstökum saksóknara?

Þorbjörg Sigríður: Hvernig var passað upp á gögnin sem láku frá sérstökum saksóknara?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Upplifði höfnun eftir kosningarnar og fannst það ósanngjarnt – Segir að síðasta ríkisstjórn hafi setið of lengi

Upplifði höfnun eftir kosningarnar og fannst það ósanngjarnt – Segir að síðasta ríkisstjórn hafi setið of lengi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi