fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Eyjan

Davíð ósáttur: „Vekur furðu að Sjálfstæðisflokkurinn láti fara svona með sig“

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 11. maí 2017 09:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra.

„Viðreisn hefur tvo fulltrúa í nefndinni og annar er að auki formaður. Sjálfstæðisflokkurinn hefur einn og Samfylkingin einn. Ef horft væri til vilja þjóðarinnar í síðustu kosningum myndi Samfylking áfram hafa einn en Sjálfstæðisflokkurinn sjö!,“

segir í Staksteinum Morgunblaðsins í dag þar sem Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins heldur að öllum líkindum á penna. Segir Davíð að þverpólitísk nefnd, sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipaði á mánudaginn, sé öll með öfugum formerkjum.

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra.

Nefndin, sem er undir forystu Þorsteins Pálssonar, á að móta tillögur um hvernig tryggja megi sanngjarna gjaldtöku fyrir afnot af fiskveiðiauðlindinni og skila tillögum sínum til ráðherra í formi lagafrumvarps eigi síðar en 1. desember 2017.

Segir Davíð það skjóta skökku við að Sjálfstæðisflokkurinn, sem hafi 21 þingmann sé aðeins með einn fulltrúa í nefndinni:

„Þegar horft er til stjórnarsamstarfsins hafa smáflokkar stjórnarinnar 3 menn í nefndinni og formennskuna, en Sjálfstæðisflokkur sem leggur til 21 þingmann til samstarfsins aðeins 1!“

Telur Davíð það óhugsandi að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hafi samþykkt þessa niðurstöðu:

Þegar slíkt stórmál er undir vekur furðu að Sjálfstæðisflokkurinn láti fara svona með sig. Varla hefur þessi niðurstaða verið samþykkt í þingflokki hans. Það er eiginlega óhugsandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Hvernig var passað upp á gögnin sem láku frá sérstökum saksóknara?

Þorbjörg Sigríður: Hvernig var passað upp á gögnin sem láku frá sérstökum saksóknara?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Upplifði höfnun eftir kosningarnar og fannst það ósanngjarnt – Segir að síðasta ríkisstjórn hafi setið of lengi

Upplifði höfnun eftir kosningarnar og fannst það ósanngjarnt – Segir að síðasta ríkisstjórn hafi setið of lengi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi