fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Skorar á Óttarr Proppé að segja af sér: Þú verður endanlega kallaður til ábyrgðar

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 9. maí 2017 11:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra og formaður Bjartrar framtíðar. Mynd/Sigtryggur Ari

Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar skorar á Óttarr Proppé að segja af sér sem heilbrigðisráðherra og á því augnabliki að sem hann geri sér grein fyrir því að hann sitji við hliðina á mönnum sem líti á kærleikann sem reiknivillu í ríkisbókhaldi þá muni hann hætta að styðja ríkisstjórnina. Í opnu bréfi til Óttars sem Kári birtir á Fésbók fer hann yfir landslag íslenskra heilbrigðismála eftir tæpa fjóra mánuði af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartar framtíðar:

Hún hefur lagt fram fimm ára áætlun ríkisfjármála, sem segir það svart á hvítu að hún ætli ekki að standa við fyrirheitin um uppbyggingu heilbrigðiskerfisins. Í stað þess að láta meta vandræði kerfisins, ákveða hvað þurfi til þess að leysa þau og reiða það síðan fram vill ríksstjórnin skammta kerfinu ákveðna fjárupphæð á ári hverju sem miðast við eitthvað allt annað en endurreisn þess. Stjórnendur Landspítalans halda því meira að segja fram að áætlunin geri ráð fyrir niðurskurði. Fjármálaráðherra heldur því fram að svo sé ekki. Eitt hljóta menn þó að vera sammála um, að áætlunin ríkisfjármála ber ekki með sér hinn minnsta vott um þá myndarlegu uppbyggingu heilbrigðiskerfisins sem þjóðin hefur einróma kallað eftir og henni var lofað fyrir kosningar,

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.

segir Kári. Þegar hann hafi talað við Óttarr í síma um daginn hafi ráðherra sagt að hann væri ekki svo einfaldur að taka ekki tillit til fjárhagslegs raunveruleika þó hann gerði sér grein fyrir vanda heilbrigðiskerfisins. Segir Kári að fjárhagslegi raunveruleikinn sé sá að síðasta ríkisstjórn hafi lækkað skatta á þeim forsendum að ástandið væri gott í ríkisrekstrinum, nú ætli ríkisstjórnin að afsala sér tekjum með lækkun virðisaukaskatts á sama tíma og hún treysti sér ekki til að endurreisa heilbrigðiskerfið. Hvetur Kári Óttarr til að rifja upp gamla ræðu og segja síðan af sér:

Eitt er víst Óttarr að samfélagið er reiðubúið til þess að borga hærri skatta til þess að fjármagna endurreisn heilbrigðiskerfisins. Ef samráðherrar þínir vilja það ekki verður þú að horfast í augu við sjálfan þig og spyrja hvort þú viljir taka þátt í þessu, vegna þess að það ert þú sem verður endanlega kallaður til ábyrgðar. Í ótrúlega fallegri bók sem fjallar um mikinn vanda segir Njörður P. Njarðvík eitthvað á þá leið að þau augnablik komi í lífi sérhvers manns að hann verði að horfast í augu við sjálfan sig í spegli svo hvasst að hann geti ekki annað en litið undan. Síðan verði hann að safna kjarki til þess að horfa aftur til baka. Þú gætir gert þetta með því að fara inn á vef Alþingis og ná í ræðu sem þú fluttir í fyrra og hlusta aftur og aftur á þennan kafla:

„Guð hjálpi þeim sem heillast af hagfræðitölum hveitiframleiðslunnar en staldrar ekki við til að dást að kornaxinu. Þótt peningar falli vissulega ljúfar ofan í reiknilíkön og prósentur en aðrir þættir mannlífsins, þá skipta aðrir hlutir ekki síður máli. Kærleikur, virðing og mannréttindi eru ekki síður mikilvæg og ber að hafa hugfast í störfum bæði þings og ríkisstjórnar. Höfum það hugfast að við vorum ekki bara kosin til að taka ákvarðanir og fara með völd, heldur til þess að þjóna almenningi í landinu. Gerum það, verum góð.“

Segir Kári að lokum:

Þegar þú verður búinn að hlusta á þetta hundrað sinnum er ég vissum að þér finnst þetta ekki lengur bara fallegt og sniðugt heldur líka satt. Á því augnabliki segirðu af þér sem heilbrigðisráðherra og hættir að styðja þessa ríkisstjórn af því þú gerir þér grein fyrir því að þér er ekki sætt við hliðina á mönnum sem líta á kærleikann sem reiknivillu í ríkisbókhaldi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð