fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Eyjan

Sema Erla boðar til samstöðufundar vegna komu Roberts Spencer

Ari Brynjólfsson
Föstudaginn 5. maí 2017 14:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sema Erla Serdar formaður Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi.

Boðað hefur verið til samstöðufundar næstkomandi fimmtudag, þann 11. maí 2017, fyrir utan Grand Hótel kl. 19:30. Yfirskriftin á fundinum er „stöndum vörð um mannaréttindi,“ segir í tilkynningu frá Semu Erlu Serdar formanns Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, eins skipuleggjenda. Kl. 20 til 22 verður Robert Spencer með fyrirlestur sem ber yfirskriftina Íslam og framtíð evrópskrar menningar. Einnig mun flytja fyrirlestur hin kanadíska Christine Williams undir heitinu Er hægt að nútímavæða Íslam?

Spencer hefur verið sakaður um fjandsamlegar alhæfingar um múslima og íslam, og verið sakaður um íslamófóbíu og rasisma. Hafa fjölmiðlar hér á landi greint frá að fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hafi vitnaði að minnsta kosti 50 sinnum í hann í skrifum sínum. Árið 2013 var Spencer meinað að koma til Bretlands til að tala á fundi samtakanna English Defense League, EDL. Það var þáverandi innanríkisráðherra og núverandi forsætisráðherra Bretlands, Theresa May, sem stóð að banninu og taldi að Spencer breiddi út boðskap sem væri óæskilegur í samfélaginu.

Segir í tilkynningunni frá Semu Erlu að mannréttindi séu óafsalanleg, ódeilanleg og algild. Allir eru bornir frjálsir og jafnir og eiga kröfu á mannréttindum:

Með vaxandi fordómum, útlendingaandúð og þjóðernishyggju er mikilvægt að standa vörð um mannréttindi og koma í veg fyrir að gengið verði á grundvallarréttindi minnihlutahópa í samfélaginu og hatur, öfgar, mismunun og ótti festi sig í sessi.

Robert Spencer trúarbragðafræðingur og rithöfundur.

Segir fáránlegt að kalla sig rasista

Spencer sagði í viðtali við DV fyrr í vikunni að hann alhæfði alls ekki um múslima og það væri fáránlegt að kalla sig rasista:

„Ég hef fengið yfir mig slíkar ásakanir vegna þess að þær eru partur af aðferðum þeirra sem styðja hryðjuverk jihadista og kúgun Sharia-laga. Þessir aðilar ráðast stöðugt á persónu þeirra sem dirfast að segja sannleikann um hugmyndafræðina sem liggur á bak við hryðjuverk jihadista. Íslamófóbía er bara áróðurshugtak sem er hannað til að fæla fólk frá því að berjast gegn jihad-isma og hryðjuverkum. Íslam er ekki kynþáttur og múslimar eru af öllum kynþáttum, því er fáránlegt að kalla mig rasista,“

sagði Spencer.

Segir í tilkynningunni að á samstöðufundinum verði fluttar stuttar ræður og tónlist, og er fólk hvatt til að mæta og senda skýr skilaboð um að Íslendingar standi vörð um mannréttindi og hafni fordómum, öfgum og hatri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Úlfur, úlfur – hótanir kalla á viðbrögð

Þorsteinn Pálsson skrifar: Úlfur, úlfur – hótanir kalla á viðbrögð
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“