

Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hafi sem fjármálaráðherra brotið gegn jafnréttislögum þegar hann skipaði í starf skrifstofustjóra skrifstofu opinberra fjármála í ágúst síðastliðnum. Sagði Bjarni í samtali við RÚV að niðurstaðan kæmi sér á óvart, hann hefði komist að þeirri niðurstöðu að sá sem hann skipaði hafi verið hæfari.
Jóhanna Sigurðardóttir fyrrverandi forsætisráðherra gerir þetta að umtalsefni á Fésbókar síðu sinni, rifjar hún upp að þegar Bjarni var í stjórnarandstöðu hafi hann kallað eftir afsögn hennar vegna sambærilegs máls árið 2011:
Bjarni Benediktsson spurði mig ítrekað hvort ég teldi ekki tilefni til afsagnar þegar Kærunefnd jafnréttismála taldi mig hafa brotið jafnréttislög árið 2011. Í því tilviki hafði karl verið metinn hæfastur en konan, sem kærði, hafði verið í fimmta sæti í hæfnismati. Síðar kom fram í áliti Umboðsmanns Alþingis að kærunefndin hefði ekki sýnt fram á að ég hefði brotið jafnréttislög. Í tilviki Bjarna voru kona og karl metin jafnhæf og karlinn ráðinn. Bjarni taldi það á sínum tíma óskiljanlega þrjósku af mér að viðurkenna ekki einfaldlega að ég hefði brotið jafnréttislög. Pólitísk ábyrgð væri ráðherrans og því tilefni til afsagnar, að hans mati,
segir Jóhanna, spyr hún að lokum:
Jæja, Bjarni, hvað ætlar þú nú að gera þegar Kærunefnd jafnréttismála hefur úrskurðað að þú hafir brotið jafnréttislög?