fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Páll Valur: Á enga samleið með Sjálfstæðisflokknum og auðvaldselítu landsins

Ritstjórn Eyjunnar
Laugardaginn 6. maí 2017 11:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Páll Valur Björnsson, fv þingmaður Bjartrar framtíðar.

Reykjanes heyrði aðeins hljóðið í Páli Val Björnssyni úr Grindavík. Páll Valur Björnsson var þingmaður Bjartrar framtíðar á síðasta kjörtímabili en náði ekki kjöri í síðustu kosninum.

Kom það þér á óvart að ná ekki inn?

Bæði og, er ekki sagt að ekkert sé öruggt í pólitík. Mér fannst ég hafa ágætis meðbyr og hvar sem ég kom var fólk jákvætt og lýsti ánægju sinni með mín störf sem þingmanns. En það skilaði sér ekki í kosningunum þrátt fyrir að ég hefði bætt fylgið um 2%. Þetta voru vissulega vonbrigði en eins og ég hef sagt áður; þú deilir ekki við dómarann.

Nú hefur þú yfirgefið Bjarta framtíð. Hvers vegna?

Einfaldlega vegna þess að ég átti ekki samleið með flokknum lengur. Það hefur ábyggilega ekki farið fram hjá neinum að ég var og er mjög mótfallinn því að Björt framtíð skyldi ákveða að mynda bandalag við Viðreisn og fara í ríkisstjórn með þeim og Sjálfstæðisflokknum. Björt framtíð með sýnar áherslur, gildi og markmið á enga samleið með Sjálfstæðisflokknum og auðvaldselítu landsins. Flokkurinn boðaði breytingar í stjórnmálum og samfélaginu og það er nú bara þannig að þær gerir þú ekki í samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn sem gaf það meira segja út fyrir kosningar að hér yrði engu breytt væri hann við völd.

Ert þú gengin til liðs við annan stjórnmálaflokk?

Nei það er ég ekki.

Gengið verður til sveitarstjórnarkosninga á næsta ári. Hefur þú í huga að bjóða þig fram til setu í bæjarstjórn Grindavíkur?

Hef ekki velt því fyrir mér að neinni alvöru ennþá en maður skyldi aldrei segja aldrei.

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks,Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hefur aðeins eins manns meirihluta. Hefur þú trú á að stjórnin nái að halda velli út kjörtímabilið?

Ég hreinlega átta mig ekki á því en mér finnst þingmenn stjórnarflokkanna vera ansi ósamstíga og vera með stórkarlalegar yfirlýsingar um hin og þessi málefni sem lögð hafa verið fram eins og t.d fjármálaáætlun. Segjast ekki styðja hana að óbreyttu og stjórn með minnsta mögulega meirihluta má ekki við því að einstaka þingmenn hlaupi útundan sér í stórum og mikilvægum málum. Við sjáum hvað setur.

Eitt af stóru málunum hér á Suðurnesjum síðustu vikurnar er kísilverksmiðja Unided Silicon og megnunaráhrifin frá henni. Hvað finnt þér um þetta?

Mér finnst þetta fyrst og fremst sorglegt og þetta lýsir í raun hversu oft á tiðum við íslendingar erum að flýta okkur. Ætt af stað í hlutina án þess að allt sé klappað og klárt og fullkomlega staðið að öllum undirbúningi. Þetta er gjörsamlega óásættanlegt og því miður er öll þessi Helguvikursaga ein sorgarsaga frá upphafi til enda en um leið dýrmæt lexía fyrir stjórnmálamenn um það hvernig ekki eigi að standa að hlutunum.  Vona samt innilega að farsællega rætist úr þessum málum öllum sem tengjast atvinnuuppbyggingu á svæðinu.

Mikil  fólksfjölgun á sér stað í Reykjanesbæ og fleiri sveitarfélögum hér. Hvernig er staðan í Grindavík?

Það er sömu sögu að segja héðan frá Grindavík, það hefur átt sér stað veruleg fólksfjölgun á síðustu árum og það ætti ekki að koma á óvart. Það er einfaldlega gott að búa í Grindavík og reyndar Suðurnesjum öllum, hér eru góð samfélög þó ýmislegt mætti vera betra eins og t.d í málefnum eldra fólks og heilbrigðisþjónustunnar.

Ferðaþjónustan hefur verið í miklum vexti að undanförnu. Ert þú sammála að hún eigi að innheimta virðisaukaskatt eins og aðrar atvinnugreinar?

Að sjálfsögðu á hún að gera það, íslenskt samfélag þarf á öllum þeim tekjum að halda sem það getur fengið og stærsti atvinnuvegur landsins á að sitja við sama borð og allir aðrir.

Að lokum. Sjáum við nafn þitt á framboðslista í næstu Alþingiskosningum?

Það er algerlega óvíst, það eru mjög áhugaverðir timar framundan og mikil gerjun að eiga sér stað í pólitíkinni sem gaman væri að taka þátt í en tíminn mun leiða það í ljós hvort af verður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð