
Ísafjarðarbær og Súðavíkurhreppur hafa sótt sameiginlega um styrk til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga ril könnunar á sameiningu sveitarfélaganna. Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps áréttar þó í bókun „að á þessu stigi málsins er engin sérstakur vilji sveitarstjórnar til sameiningar sveitarfélaganna“ en „Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps hefur mikinn á áhuga á víðtækara samstarfi sveitarfélaganna og jafnvel samrekstri ýmissa verkefna sem eru á höndum sveitarfélaganna“ eins og segir einnig í bókuninni.
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar gerði svipaða samþykkt á sínum fundi og óskaði eftir „samstarfi við Súðavíkurhrepp um að kannaðir verði kostir og gallar á sameiningu og hvernig þróa megi ríkara samstarf sveitarfélaganna sbr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga og sótt verði um fjárframlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til framkvæmdar þeirrar könnunar.“
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga er heimilt að veita fjárhagsaðstoð úr sjóðnum til þess greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga með því að greiða kostnað við könnum á hagkvæmni sameiningar. Miðar sjóðurinn við að greiða allt að 1.700 þúsund krónur ef sameiningartillagan nái til tveggja sveitarfélaga.