fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Framkvæmdastjóri IKEA: Verslun á villigötum

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Sunnudaginn 18. júní 2017 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórarinn Ævarsson framkvæmdastjóri IKEA skrifar:

Mikil vakning hefur átt sér stað meðal íslenskra neytenda síðustu misseri og eru fyrir því ýmsar ástæður. Innkoma erlendra verslunarrisa hefur þar áhrif auk þess sem aðgengi að upplýsingum á netinu og möguleikarnir á að eiga viðskipti þar leika stórt hlutverk.

Almenningur hefur verið mjög gagnrýnin á íslenska verslun og gerir bæði athugasemdir við verðlag, sem oft á tíðum er sagt líkjast okri, og eins hefur mörgum þótt ganga hægt að skila stöðugri styrkingu krónunnar undanfarin misseri til almennings. Birtingarmynd þessa ástands sést í þeim viðtökum sem verslun COSTCO fær og í gríðarlegri aukningu á alls konar verslun í gegnum netið.

Það má taka undir það að ákveðnar vörur í ákveðnum verslunum séu allt of hátt verðlagðar og að menn gætu verið sneggri til að lækka verð á innfluttum vörum þegar krónan styrkist. Þetta er þó að mínu mati aðeins toppurinn á ísjakanum, því þetta snýst ekki bara um verð, heldur einnig siðferði.

Verið að blekkja fólk

Það er og hefur verið plagsiður í íslenskri verslun að margir kaupmenn verðleggja vörur langtum hærra en þeir reikna með að geta selt þær á. Þessir kaupmenn eru síðan reglulega með mjög ríflega afslætti, allt frá vasklausum dögum upp í allt að 50% afslátt og eru þá að rukka það sem gæti talist eðlilegt verð fyrir viðkomandi vöru. Margir hafa því miður látið glepjast af þessu og er nú svo komið að mörg fyrirtæki eru að auglýsa sérstaka tilboðsdaga nánast hverja einustu viku ársins – það nægir að lesa helgarblöðin til að fá staðfestingu á því. Fjölmörg dæmi eru síðan um það að kaupmenn hækka vöruverð rétt fyrir útsölu, bara til að geta sýnt fram á enn ríflegri afslátt í prósentum á útsölunni. Þeir einfeldningar sem keyptu vörur frá þessum fyrirtækjum á fullu verði verða að bíta það súra epli að hafa verið gerðir að fífli.

Almenningur á þá eðlilegu kröfu að fyrirtæki verðleggi vöruna á því verði sem hún á að vera á og að verðlækkanir séu almennt bundnar við útsölur og þá með það að markmiði að losna við gamlar birgðir, til að rýma fyrir nýjum.
Það er ekki bara það að verðvitund fólks brenglast við svona æfingar, það er líka verið að blekkja fólk og telja því trú um að það sé að gera verulega góð kaup.

Ekki allir við sama borð

Annað mál sem einkennir vissa hluta verslunar er sú staðreynd að það sitja ekki allir við sama borð.  Ákveðnir aðilar, oft iðnaðarmenn eða fagaðilar, eru með tug prósenta afslátt, meðan almenningur þarf þá að greiða því meira. Það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt við það að fagaðilar sem eru í miklum viðskiptum njóti þess með ívið betri kjörum en leikmaður, sem er með mjög takmörkuð viðskipti, en að það geti munað allt að 50% á því verði sem innvígðir fá og síðan því verði sem almenningur borgar er að mínu mati fullkomlega óskiljanlegt og óásættanlegt. Þarna er almenningur augljóslega að niðurgreiða þá vöru sem iðnaðarmaðurinn er að kaupa.  Oft er það síðan svo að milliliðurinn heldur ávinningnum fyrir sig í stað þess að endanlegur verkkaupi fái að njóta viðskiptakjaranna, nema þá að litlum hluta.

Þetta þekkja nánast allir á sínu eigin skinni, hvort sem það er viðhald á fasteign, eða viðgerð á bílum og þetta hefur viðgengist um árabil. Þarna eru viðkomandi kaupmenn og fagaðilar í óverjandi samkrulli gegn almenningi, en með aukinni upplýsingu þá hefur sem betur fer verið að skapast óþol gagnvart þessu.

Í því fyrirtæki sem ég er í forsvari fyrir gerist það mjög reglulega að viðskiptavinir fara fram á að fá afslátt af kaupum og vísa þá til þess að þeir eru að kaupa talsvert magn. Þegar þeim er bent á að það séu engin eða sáralítil viðbótarkjör í boði bregðast sumir hverjir mjög illa við og verða sármóðgaðir, enda vanir því að fá tugi prósenta annars staðar. Staðreyndin er sú að á endanum þá þarf alltaf einhver að borga. Ef einhver einn aðili fær ríflegan afslátt, þá þarf sá næsti að greiða því meira til að verslunin fái það sem hún þarf. Þetta kemur mjög bersýnilega í ljós í viðskiptamódeli COSTCO, en þar eru engir afslættir í boði, sama hversu stór viðskiptavinur maður er.

Hugarfar þarf að breytast

Það má segja að íslensk verslun sé að ákveðnu leyti rúin trausti og í tilvistarkreppu. Til að ná vopnum sínum verða verslunarmenn að breyta því hvernig þeir koma fram við viðskiptavini sína.

Hluti verslunar á Íslandi stendur frammi fyrir þeim veruleika að það er hætta á að hún leggist af í núverandi mynd og flytjist alfarið yfir til erlendra aðila gegnum netið. Það er þróun sem er að mínu mati ekki eftirsóknarverð. Ef verslun á Íslandi ætlar að komast upp úr þeim öldudal sem hún er nú í þá þarf hugarfar hins vegar að breytast. Viðskiptavinir eru ekki einnota og það að beita blekkingum eða mismuna viðskiptavinum stórlega er ekki rétta aðferðin.

Ég sakna þess að forsvarsmenn verslunar á Íslandi hafi ekki gert sig meira gildandi í umræðunni, gagnrýnt þá sem stunda vafasama viðskiptahætti og talað fyrir bættu viðskiptasiðferði. Þar til þessir hlutir breytast, þá er hér frjósamur jarðvegur fyrir Alibaba, COSTCO, ShopUSA og Ebay.

*Höfundur er framkvæmdastjóri Miklatorgs hf., IKEA*

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi