Fastanefndir Alþingis eru átta talsins alls og eru að jafnaði skipaðar níu þingmönnum hver. Starfið innan nefndanna er gríðarlega mikilvægur hlekkur í starfi Alþingis. Hins vegar er álagið æði misjafnt í nefndunum en til að mynda fundaði fjárlaganefnd 51 sinni á síðasta þingi en utanríkismálanefnd aðeins 24 sinnum. Meirihluti nefndarmanna þarf að sækja fundina svo að þeir teljist ályktunarbærir.
Yfirleitt er það ekki vandamál en þó lagði minnihlutinn í utanríkismálanefnd fram eftirfarandi bókun á 17. fundi nefndarinnar: „Fulltrúar Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og Pírata bóka athugasemdir við að meirihlutinn hafi margsinnis ekki virt þingsköp sem kveða á um mætingarskyldur þingmanna á nefndarfundi og að fulltrúar meirihlutans kalli ekki inn varamenn ef forföll verða í þeirra hópi. Fulltrúar minnihlutann bera þar með ábyrgð á því að fundir séu mannaðir og fundir séu þar með lögmætir. Það gangi ekki upp til lengdar.“
Þetta er athyglisvert í ljósi þess að mætingarskylda er á nefndarfundi nema að „nauðsyn banni“ eins og segir orðrétt í lögum. Þrátt fyrir það eru óútskýrð forföll nokkuð algeng en munurinn á nefndarfundum og almennum þingfundum er sá að mæting þingmanna er kirfilega færð til bókar í fundargerðum nefnda. Blaðamaður kafaði því ofan í rúmar fjögur hundruð fundargerðir og tók mætinguna saman.
Nefndin tók til starfa þann 8. desember og fundaði stíft fram að áramótum eða í sextán skipti. Benedikt Jóhannesson var formaður fyrir áramót og mætti í 15 skipti; 94 prósent. Í eina skiptið sem hann forfallaðist var kallaður til varamaður. Eftir áramót tók Óli Björn Kárason við formennsku og hann mætti framúrskarandi vel.
Mætingarverðlaun fyrir áramót:
Brynjar Níelsson (Sjálfstæðisflokkur), 1. varaformaður, og Elsa Lára Arnardóttir (Framsókn). 16 fundir af 16 – 100% mæting.
Mætingarverðlaun eftir áramót:
Ólafur Björn Kárason – formaðurinn mætti í 37 skipti af 38 sem gerir 97 prósenta mætingu. Í eina skiptið sem hann mætti ekki var kallaður til varamaður.
Skussi fyrir áramót:
Vilhjálmur Bjarnason (Sjálfstæðisflokki) – Mætti í 12 skipti af 16. Ekki var kallaður til varamaður í þau skipti sem hann skrópaði.
Skussi eftir áramót:
Smári McCarthy (Pírötum) – Smári mætti aðeins í 24 skipti af 38. Hann kallaði þó til varamann í níu skipti en í fimm skipti var sæti hans autt án útskýringa.
Nánar er fjallað um mætingar á nefndarfundi í helgarblaði DV.