fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
Eyjan

Jökulsárlón og nærliggjandi svæði friðlýst sem hluti Vatnajökulsþjóðgarðs

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 25. júlí 2017 14:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra.

Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu Jökulsárlóns og umfangsmikilla svæða sem liggja að lóninu. Um leið er svæðið fellt inn í Vatnajökulsþjóðgarð. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu. Mað friðlýsingunni nær þjóðgarðurinn frá hæsta tindi landsins niður að fjöru. Þessi breyting felur í sér að hluti þjóðvegar 1 liggur nú í gegn um þjóðgarð í fyrsta sinn.

Friðlýsingin tekur til jarðarinnar Fells og nærliggjandi þjóðlenda. Gengið var frá kaupum ríkisins á Felli í Suðursveit í janúar sl. Jörðin Fell nær yfir Jökulsárlón að hluta og á landamerki að þjóðlendum vestan vegna lónsins og norðaustur af Felli. Með friðlýsingunni nú eru þessi svæði felld inn í Vatnajökulsþjóðgarð, alls um 189 ferkílómetrar. Er Vatnajökulsþjóðgarður þar með 14.141 ferkílómetrar að flatarmáli.

Kort af friðlýsta svæðinu.

Sérstaða landsvæðisins er mjög mikil. Það er mótað af framgangi og hopun jökla og einkennist af sérstæðum jökulöldum. Ein helsta náttúruperla svæðisins er Jökulsárlón sem er stærsta og þekktasta jaðarlón á landinu en þangað liggur nú stöðugur straumur ferðamanna. Með friðlýsingunni nær Vatnajökulsþjóðgarður nú einnig yfir stóran hluta Breiðamerkursands og meginhluta Fjallsárlóns en á öllu þessu svæði er rekin umfangsmikil ferðaþjónusta.

Telur ráðuneytið að með því að fella svæðið inn í Vatnajökulsþjóðgarð sé verndun og stjórnun þess betur samræmd, til dæmis hvað varðar umgengni og öryggi ferðamanna. Svæðið er nú hluti rekstrareiningar suðursvæðis þjóðgarðsins og svæðisráð sem er undir formennsku sveitarfélagsins Hornafjarðar. Segir í fréttatilkynningunni að framundan séu krefjandi verkefni við uppbyggingu innviða og landvörslu á svæðinu.

Þar að auki styrki friðlýsingin vinnu við tilnefningu Vatnajökulsþjóðgarðs sem náttúruminja á heimsminjaskrá UNESCO sem unnið hefur verið að um nokkurt skeið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Svona er pólitíkin að breytast á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Svona er pólitíkin að breytast á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Könnun – Ísland og Evrópusambandið

Könnun – Ísland og Evrópusambandið