fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar ánægður: „Hættum svo að úthúða flokkum fyrir að gera það eina rétta“

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 30. nóvember 2017 10:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árni Páll Árnason fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. Mynd: DV/Sigtryggur Ari

Árni Páll Árnason fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og ráðherra er ánægður með nýju ríkisstjórnina. Samfylkingin hefur lastað Vinstri græn og ákvörðun flokksins að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum í stað þess að reyna til þrautar að mynda ríkisstjórn með Samfylkingunni, Pírötum, Framsóknarflokknum og Viðreisn, hafa margir áhrifamenn í Samfylkingunni sagt að VG hafi lagt upp með að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum og að viðræðurnar til vinstri hafi verið sýndarviðræður.  Logi Einarsson núverandi formaður hefur einnig gefið slíkt hið sama í skyn. Árni Páll er hins vegar ánægður:

Glaður að heyra af nýrri rikisstjórn undir góðri forystu. Katrín Jakobsdóttir er vinkona mín, hreinlynd, trygglynd, dugmikil og skörp svo af ber. Við verðum ekki svikin af henni í forsætisráðuneytinu,

segir Árni Páll á Fésbók. Segir hann að kosningar ráði ríkisstjórnarmynduninni:

Allir lýðræðislega þenkjandi stjórnmálamenn þurfa að virða kosninganiðurstöður og virða og vinna með þeim flokkum sem landsmenn kjósa. Það gerir VG nú, rétt eins og Björt Framtíð og Viðreisn gerðu fyrir ári, Sjálfstæðisflokkurinn gerði 2013 og Samfylkingin gerði árið 2007. Hættum svo að úthúða flokkum fyrir að gera það eina rétta: Að spila úr þeim spilum sem kjósendur skammta þeim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið