

Edward H. Huijbens, varaformaður VG, segir að það yrði mjög umdeilt meðal stuðningsmanna flokksins ef niðurstaða stjórnarviðræðna VG, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins yrði að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins yrði ráðherra.
Þetta kemur fram á RÚV.
„Fyrir mörgum er þetta algjört eitur í beinum og það er skiljanlegt. Auðvitað þarf að seilast mjög langt til okkar hvað varðar helstu málefni, ég myndi líka vilja sjá einhverjar í stjórnmálunum og í samstarfinu koma fram, til að mynda að teygja sig út fyrir raðir flokkanna í einstökum málum, teygja sig utan þings hvað varðar ráðherrastóla og einhvers skonar nýjungar í íslenskri pólitík í samstarfi, það myndi hjálpa til og sýna það á borði að það væri uppgjör í gangi á ákveðnum vinnubrögðum og ákveðinni sögu sem að hangar sérstaklega á baki Sjálfstæðisflokki,“ hefur RÚV eftir Edward.
Hann segir það ófrávíkjanlega kröfu að Katrín Jakobsdóttir verði forsætisráðherra. Edward viðrar efasemdir sínar um samstarf þessara þriggja flokka á lokuðum hópi stuðningsmanna Vinstri grænna á Facebook. Þar segir hann að slík stjórn gæti verið erfið fyrir VG. Þrátt fyrir þetta biður hann stuðningsmenn flokksins um að anda með nefinu meðan stjórnarviðræður fara fram.
„Ég var að biðja félagsmenn um að treysta forystunni til þess að kanna hvort það sé yfirhöfuð einhver flötur á einhvers konar samtali og það er það sem er akkúrat í gangi núna, það er verið að ræða hvort það er tilefni til þess að setjast formlega saman og reyna að mynda stjórn.“