
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, var í viðtali við Heimi Má Pétursson í Víglínunni á Stöð 2 nú í hádeginu. Þar sagðist hann ekkert skilja í formanni Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssyni, fyrir að bíða ekki með að fá stjórnarmyndunarumboðið áður en hann héldi til viðræðna við VG og Framsóknarflokkinn.
Ég skyldi ekkert í Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins, að ef hann ætlaði í þessar viðræður, að bíða ekki eftir að fá formlegt stjórnarmyndunarumboð frá forsetanum. Því með því hefði hann verið að styrkja stöðu sína inn í þessar viðræður, líka jafnvel þótt hann hefði getað hugsað sér að gefa forsætisráðuneytið eftir, ef það hefði verið krafa einhverra þingmanna flokksins sem langaði til að verða ráðherrar. Þá hefði hann samt verið í sterkari stöðu að vera með umboðið, sem hann hefði fengið. En nú er hann kominn í þetta án þess að vera með umboðið og þá segir varaformaður Vinstri grænna að það sé ekkert víst að hægt sé að leyfa Bjarna Ben að vera ráðherra í ríkisstjórninni !
Hann ræddi einnig um áhrif bloggs Björns Vals Gíslasonar, fyrrum varaformanns Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs sem hefur verið jákvæður í garð þeirrar þriggja flokka stjórnar sem um ræðir.
Það er mikið vitnað í bréf Björns Vals Gíslasonar sem er orðinn helsti talsmaður þessarar stjórnar og ef vel er að gáð, þá hefur hann fyrir því Björn, sérstaklega, að búa til lógó þar sem er pínulítið sjálfstæðismerki og pínulítið framsóknarmerki og svo stærra merki Vinstri grænna. Svo skrifar hann Sjálfstæðisflokkinn með litlu s-i og Framsóknarflokkinn með litlu f-i og nafn Vinstri grænna með stórum staf. Þannig er oft hægt að lesa milli línanna. Og ég held að vísbendingarnar séu byrjaðar að hrannast upp hvers eðlis þessi ríkisstjórn yrði.