
Ekki verður lengur vísað til Egilsstaða eða Hafnar um Öxi og Breiðdalsheiði á veturna í kjölfar breytingar á skilgreiningu Þjóðvegar 1. Það kostar 8-12 milljónir að breyta áður skilgreindum vegi þannig að hann liggi um Fjarðaleið um Austurland. Vegaskiltum verður breytt í þessari viku samkvæmt heimildum RÚV en framvegis verður ferðalöngum á leið til Egilsstaða ekki vísað yfir Breiðdalsheiði og Öxi á veturna, heldur bara á sumrin eða þegar þær eru færar.
Í ágústmánuði ákvað Jón Gunnarsson samgönguráðherra að fara að ráðum Vegagerðarinnar og skilgreina fjarðaleið um Austfirði sem Þjóðveg 1 í staðinn fyrir Breiðdalsheiði sem ekki er mokuð á veturna og verður því ófær. Áætlaður kostnaður við breytingar á skiltum er 8-12 milljónir að sögn Vegagerðarinnar en breyta þarf vegnúmerum þannig að Breiðdalsheiði verður ekki lengur númer eitt heldur 95, og Suðurfjarðavegur sem er nú númer 96, og Fagridalur númer 92 fá hringvegsmerkinguna 1. Þar sem aðeins þarf að breyta vegnúmeri verður límt á núverandi skilti en þar sem einnig þarf að breyta texta verður skiltaplatan endurnýjuð. Skilti sem vísa á styttri leiðir um Breiðdalsheiði og Öxi verða sett upp að vori og tekin niður að hausti, og ber Vegagerðin ábyrgð á þeim verkþætti í takt við veðurfar og færð. Einnig þarf að breyta upplýsinga- og kortaskiltum á áningarstöðum og koma breytingum inn í stafræn kort í leiðsögutækjum og ljóst sé að það muni taka talsverðan tíma.