fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Samfylkingin um fjárlagafrumvarpið: „Svik við kjósendur og algjört metnaðarleysi í velferðarmálum“

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 22. desember 2017 11:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar

Samfylkingin hélt blaðamannafund nú í morgun. Þar kom fram hörð gagnrýni flokksins á nýtt fjárlagafrumvarp, sem er sagt bera vott um „svik við kjósendur“ og  „algjört metnaðarleysi í velferðarmálum.“ Flokkurinn sendi frá sér tilkynningu þar sem helsta gagnrýni og breytingartillögur eru tíundaðar:

 

 

 

 

Samfylkingin gagnrýnir harðlega fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Fjárlagafrumvarpið ber vott um svik við kjósendur og algjört metnaðarleysi í velferðarmálum. Langflestir hagsmunaaðilar sem komu á fund fjárlaganefndarinnar lýstu yfir miklum vonbrigðum með fjárlagafrumvarpið. Hvorki er ráðist í nauðsynlegar fjárfestingar í innviðum samfélagsins né ráðist í nauðsynlega tekjuöflun. Þegar þetta fjárlagafrumvarp er borið saman við fjárlagafrumvarp fyrri ríkisstjórnar sem Vinstri græn kölluðu „hægri sveltistefnu“ kemur í ljós að einungis er gerð 2% breyting á milli frumvarpa. Í meðförum fjárlaganefndar tók frumvarpið aðeins 0,2% breytingum og því er fjárlagafrumvarp Katrínar Jakobsdóttur eingöngu 2,2% frábrugðið fjárlagafrumvarpi síðustu ríkisstjórnar.
Helsta gagnrýni og breytingartillögur
1. Því miður er ekkert tekið á misskiptingunni í samfélaginu í gegnum skattkerfið. Núna eiga 5% af ríkustu landsmönnum jafnmikið af hreinum eignum og hin 95% landsmanna.
2. Engar viðbótarfjárveitingar eru settar í barnabætur, vaxtabætur, húsnæðisstyrk, fæðingarorlof og húsnæðismál. Samfylkingin leggur til að 5 milljarðar verði settir í barna- og vaxtabótakerfið og 2 milljarðar verði settir í stofnframlög til almennrar íbúða
3. Sveltistefna gagnvart heilbrigðiskerfinu heldur áfram, en nú í boði Vinstri grænna. Allir forsvarsmenn heilbrigðisstofnana sem komu á fund fjárlaganefndar lýstu yfir mikilli óánægju með fjárlagafrumvarpið. Enn vantar Landspítalann tæplega 3 milljarða einungis til að halda í horfinu. Heilbrigðisstofnanir úti á landi fá minna en helming af því sem þær óskuðu eftir svo hægt væri að tryggja óbreytta starfsemi. Þá fá hjúkrunarheimili beinlínis lækkun á milli ára. Samfylkingin leggur því til að 3 milljarðar renni til Landspítalans og Sjúkrahússins á Akureyri, 500 milljónir til heilbrigðisstofnanna og 400 milljónir til heilsugæslunnar.
4. Bæði landsamtök eldri borgara og öryrkja lýsa miklum vonbrigðum með frumvarpið. Samfylkingin leggur því til að í málefni aldraðra verði settur 1,5 milljarður aukalega og 3 milljarðar fari til öryrkja.
5. Framhaldsskólastigið býr enn við talsverða fjárhagserfiðleika og leggur Samfylkingin til að það fái tvöfalt meira en það sem ríkisstjórnin leggur til eða 400 milljónir króna.
6. Samfylkingin leggur til 50% hækkun á því nýja fjármagni sem ríkisstjórnin og fjárlaganefnd leggja til samgöngumála eða 1 milljarð kr.
7. Samfylkingin leggur til að einn milljarður fari í stórsókn gegn kynbundnu ofbeldi og fjölgun lögreglumanna en einungis einn fimmti þeirra fjárhæðar er að finna í fjárlagafrumvarpinu.
8. Stjórnarflokkunum verður gefið tækifæri til að afnema bókaskattinn og liggur tillaga þess efnis fyrir þinginu í boði Samfylkingarinnar.
Ofangreind fjárfesting í innviðum samfélagsins er meira en tvöfalt hærri en sú sem Vinstri græn hafa náð í gegn með fjárlagafrumvarpi sínu. Um er að ræða fjárfestingu upp á 18 milljarða sem er lægri upphæð en ný ríkisstjórn afsalar sér í tekjur með lægri kolefnisgjöldum, minni álögum á ferðamenn og bílaleigur. Samfylkingin leggur til að breytingartillögur sínar verði full fjármagnaðar m.a. með auknum tekjum af erlendum ferðamönnum, hækkun auðlindagjalda og kolefnisgjalds, tekjutengdum auðlegðarskatti og hærri fjármagnstekjuskatti.
Barnafólk, milli- og lágtekjufólk, sjúklingar, aldraðir og öryrkjar og í raun allur almenningur er illa svikinn af fjárlagafrumvarpi Katrínar Jakobsdóttur. Samfylkingin sýnir því í verki að hægt er að standa við kosningaloforðin og tryggja hér nauðsynlega innviðauppbyggingu sem allir flokkar voru sammála um fyrir eingöngu 7 vikum.
22. desember 2017
Þingflokkur Samfylkingarinnar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins