fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Eyjan

Ísland styður hinsegin fólk – Gerist aðili að Equal Rights Coalition

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 3. apríl 2018 15:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úr gleðigöngu hinsegin fólks.

Ísland gerðist í dymbilvikunni aðili að Equal Rights Coalition sem er hópur ríkja sem vinna saman að því að tryggja að hinsegin fólk (LGBT+) hvarvetna fái notið allra mannréttinda. Aðild að bandalaginu er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar en þar kemur fram að stefnt skuli að því að koma Íslandi í fremstu röð í málefnum hinsegin fólks.

Equal Rights Coalition var hleypt af stokkunum á alþjóðlegri ráðstefnu um mannréttindi hinsegin fólks sem fram fór í Montevideo í Úrúgvæ í júlí 2016. Aðildarríkin skiptast á upplýsingum um stöðuna heimafyrir, til að tryggja frekari framgang réttinda, en litið er svo á að úrbóta sé alls staðar þörf þótt aðstæður sé vissulega ekki alls staðar þær sömu.

Ennfremur er lögð áhersla á að bandalagið beiti sér sameiginlega þegar þörf krefur, með því að reyna að hafa jákvæð áhrif á ríki, þar sem rammt hefur kveðið að brotum gegn hinsegin fólki. Þá er lagt mikið upp úr því að eiga gott samráð við frjáls félagasamtök, sem vinna að bættum réttindum hinsegin fólks, sem og viðeigandi stofnanir Sameinuðu þjóðanna. Sérstök áhersla er lögð á að fylgja málum fram á grundvelli Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Kanada og Chile hafa verið í forystu Equal Rights Coalition undanfarið ár og m.a. lagt áherslu á að fjölga aðildarríkjum bandalagsins. Fjögur ríki gengu til liðs við bandalagið á fundi í gær, sem haldinn var í Washington í Bandaríkjunum, en auk Íslands var um að ræða Danmörk, Lúxemborg og Grænhöfðaeyjar. Eiga þá alls þrjátíu og níu ríki aðild að Equal Rights Coalition, þ.m.t. öll Norðurlöndin. Framundan er stór ráðstefna, sambærileg við þá sem haldin var í Montevideo í júlí 2016. Hún verður haldin í Vancouver í Kanada 6.-8. ágúst nk. undir yfirskriftinni: Global Conference on LGBTI Human Rights and Inclusive Development og er gert ráð fyrir að ráðstefnuna sæki á bilinu 300 til 400 fulltrúar ríkja og frjálsra félagasamtaka.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þórdís kölluð svikari – „Það sem áður var aðalsmerki orðið að svikamerki“

Þórdís kölluð svikari – „Það sem áður var aðalsmerki orðið að svikamerki“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðreisn kynnir áherslur sínar í Reykjavík: „Þessu ætlum við að snúa við“

Viðreisn kynnir áherslur sínar í Reykjavík: „Þessu ætlum við að snúa við“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Forgangsröðunin í gangagerð er skynsamleg og tekur á bráðum vanda

Eyjólfur Ármannsson: Forgangsröðunin í gangagerð er skynsamleg og tekur á bráðum vanda
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Forysta kennara eins og LÍÚ – vilja ráða öllu og allir aðrir eru óupplýstir bjálfar

Orðið á götunni: Forysta kennara eins og LÍÚ – vilja ráða öllu og allir aðrir eru óupplýstir bjálfar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Kvótakerfið á að vernda stofna og stuðla að hagræðingu – líka tryggja byggð og atvinnu

Eyjólfur Ármannsson: Kvótakerfið á að vernda stofna og stuðla að hagræðingu – líka tryggja byggð og atvinnu