fbpx
Miðvikudagur 12.nóvember 2025
Eyjan

Þorgerður Ingólfsdóttir er heiðursborgari Reykjavíkur

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 31. janúar 2018 16:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að lokinni athöfn í Höfða: Þorgerður Ingólfsdóttir, heiðursborgari Reykjavíkur, ásamt eiginmanni sínum Knut Arne Ödegard og Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sæmdi Þorgerði Ingólfsdóttur, tónlistarkennara og
kórstjóra, heiðursborgaranafnbót Reykjavíkurborgar við hátíðlega athöfn í Höfða í dag.
Borgarstjóri sagði í ræðu sinni að með nafnbótinni vilji Reykjavíkurborg þakka Þorgerði fyrir
ómetanlegt og óeigingjarnt starf í þágu borgarinnar og þjóðarinnar allrar á sviði tónlistar og
kóramenningar.

Þorgerður á langan tónlistarferil að baki en hún hóf tónlistarnám sjö ára að aldri. Hún lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1963, tónmenntakennaraprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík og nam tónvísindi og kórstjórn á meistarastigi við University of
Illinois í Bandaríkjunum. Hún hefur einnig stundað tónlistarnám í Austurríki, Bretlandi, Ísrael,
Noregi og Sviss og nam auk þess guðfræði um hríð við Háskóla Íslands.

Þorgerður stofnaði Kór Menntaskólans við Hamrahlíð árið 1967 og framhaldskór hans,
Hamrahlíðarkórinn, árið 1982. Undir stjórn Þorgerðar hafa kórarnir notið gríðarlegra
vinsælda, haldið fjölda tónleika hér heima og erlendis og hlotið margvísleg verðlaun,
viðurkenningar og lofsamlega dóma. Ljóst er að kórarnir hafa haft víðtæk áhrif á íslenskt
tónlistarlíf, í gegnum tónlistaruppeldi, innblástur og öguð vinnubrögð. Þúsundir ungmenna
hafa hlotið tónlistaruppeldi í Hamrahlíðarkórunum og fjöldi landsþekktra tónlistarmanna og
hljómsveita hafa haft þar viðkomu og má þar nefna Sigríði Thorlacius, Björk
Guðmundsdóttur, Kristinn Sigmundsson, Egil Ólafsson og Valgeir Guðjónsson, og
hljómsveitirnar Spilverk þjóðanna, Hjaltalín og Moses Hightower.

Þorgerður kenndi við Tónlistarskólann í Reykjavík í tæp þrjátíu ár og var fulltrúi
tónlistarmanna í stjórn Bandalags íslenskra listamanna. Hún hefur tekið virkan þátt í
alþjóðlegu samstarfi á sviði tónlistar og meðal annars setið í dómnefndum í ýmsum
alþjóðlegum tónlistarkeppnum.

Þorgerður hefur á ferli sínum hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín, en meðal annars var
hún gerð að borgarlistamanni Reykjavíkur árið 2012 og ári síðar var hún sæmd
heiðursverðlaunum Íslensku tónlistarverðlaunanna. Þá var Þorgerður sæmd riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu árið 1985 fyrir tónlistarstörf.

Hingað til hafa sex Reykvíkingar verið gerðir heiðursborgarar Reykjavíkur en þeir eru; séra
Bjarni Jónsson árið 1961, Kristján Sveinsson árið 1975, Vigdís Finnbogadóttir árið 2010, Erró
(Guðmundur Guðmundsson) árið 2012, Yoko Ono árið 2013 og Friðrik Ólafsson árið 2015.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Svona gerir maður ekki

Orðið á götunni: Svona gerir maður ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum