fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Viðskiptaráð fagnar tillögum fjölmiðlaskýrslu – Vill RÚV af auglýsingamarkaði

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 26. janúar 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/DV

Viðskiptaráð sendi frá sér fréttatilkynningu í kjölfar birtingar fjölmiðlaskýrslunnar þar sem niðurstöðum hennar er fagnað, en Viðskiptaráð hefur lengi talað fyrir að RÚV hverfi af auglýsingamarkaði, líkt og lagt er til í skýrslunni.

Í umfjöllun Viðskiptaráðs segir:

 

Viðskiptaráð hefur áður talað fyrir mikilvægi þess að Ríkisútvarpið hverfi frá hefðbundnum auglýsingamarkaði en RÚV er eini ríkisfjölmiðillinn á Norðurlöndunum sem stendur í beinni samkeppni við einkaaðila á markaði. Hugmyndin er langt í frá ný af nálinni en árið 2008 lagði Samkeppniseftirlitið til að fyrirkomulagið yrði endurskoðað þar sem það leiði til alvarlegrar takmörkunar á samkeppni. Þá hefur áður verið ályktað um málið hjá nefndarsviði Alþingis, auk þess sem ráðamenn hafa sagt breytingar á fyrirkomulaginu brýnar. Nú er mikilvægt að skrefið verði loks tekið.

Þá telur ráðið það skref í rétta átt að afnema bann á áfengis- og tóbaksauglýsingum eins og bent var á í umsögn ráðsins um áfengisfrumvarpið svokallaða síðasta vor. Þrátt fyrir bann á auglýsingum eru áfengis- og tóbaksauglýsingar sýnilegar landsmönnum á öllum aldri á degi hverjum. Þær er ýmist að finna í erlendum miðlum, undir formerkjum léttöls eða sem „duldar“” auglýsingar. Afnám bannsins jafnar samkeppnisstöðu innlendra áfengisframleiðenda og fjölmiðla við samkeppnisaðila sína erlendis.

Loks tekur ráðið heilshugar undir hugmyndir um svokallaðan samkeppnissjóð um innlenda dagkrárgerð sem komið hafa upp í kjölfar skýrslunnar. Hefur Viðskiptaráð áður viðrað slíkar hugmyndir. Með því fyrirkomulagi stæðu allir fjölmiðlar landsins jafnfætis þar sem keppt yrði um fjárveitingar með gagnsæjum hætti. Dæmi um slíkt fyrirkomulag er Kvikmyndasjóður Íslands. Í stað þess að framleiða efni sjálft með opinberu framleiðslufyrirtæki veita stjórnvöld samkeppnisstyrki til framleiðslu á efni í gegnum sjóðinn og leysa þannig úr læðingi kraft samkeppnisumhverfis.

Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til þess að ganga í þessi mál hið fyrsta og bæta samkeppnisstöðu fyrirtækja á markaði með fyrrgreindum tillögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins