fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Miðflokkurinn vill óháða og faglega staðarvalsgreiningu fyrir nýtt þjóðarsjúkrahús

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 23. janúar 2018 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 

Þingflokkur Miðflokksins hefur lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um faglega staðarvalsgreiningu fyrir nýjan Landspítala.
Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Anna Kolbrún Árnadóttir og gerir tillagan ráð fyrir því að heilbrigðisráðherra verði falið að að framkvæma óháða, faglega staðarvalsgreiningu fyrir nýtt þjóðarsjúkrahús. Í tillögunni segir ennfremur að ráðherra skuli leita ráðgjafar hjá erlendum aðilum sem og innlendum fagaðilum sem verði falið að gera úttekt á mögulegri staðsetningu, m.a. með tilliti til fjárhags-, gæða-, samgöngu-, umferðar- og öryggismála. Gert er ráð fyrir að niðurstöður greiningarinnar verði birtar með aðgengilegum hætti og að ráðherra flytji Alþingi skýrslu um niðurstöðurnar eigi síðar en í maí 2018.

Bygging nýs Landspítala á nýjum stað var eitt af helstu áhersluatriðum í kosningastefnu Miðflokksins fyrir Alþingiskosningarnar 2017, enda hafa fjölbreytt rök fagaðila sýnt fram á að það væru afdrifarík mistök að halda áfram með úrelt áform um byggingu spítala við Hringbraut. Það er því augljós og skynsamleg nálgun að fram fari á vegum ríkisins óháð og fagleg staðarvalsgreining sem gefi skýra mynd af kostunum sem í boði eru til byggingar nýs þjóðarsjúkrahúss.

Í greinargerð þingsályktunartillögunnar segir:

Á árunum 2001–2008 skrifuðu íslenskri og erlendir sérfræðingar fjölmargar álitsgerðir og í flestöllum var komist að þeirri niðurstöðu að best væri að byggja nýtt þjóðarsjúkrahús frá grunni á nýjum stað. Sérfræðingarnir sem sömdu álitin töldu hins vegar að ef ekki væri hægt að byggja nýtt sjúkrahús frá grunni á nýjum stað væri best að byggja við sjúkrahúsið í Fossvogi eða gamla Landspítalann við Hringbraut. Niðurstaðan, að byggja við Landspítalann við Hringbraut, var byggð á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001–2024 en allar forsendur skipulagsins eru brostnar, ekkert þeirra umferðar- og skipulagsúrræða sem þar er reiknað með er í gildi í núna. Núverandi staðarval virðist því byggjast á úreltu skipulagi. 

Í skýrslu, sem unnin var af Háskólanum á Bifröst og Rannsóknarstofnun atvinnulífsins fyrir Samtök atvinnulífsins í nóvember 2015, kom m.a. fram að Hringbraut hentaði ekki sem framtíðarstaðsetning þjóðarsjúkrahússins og tekið var til að fjárhagslegur ávinningur annarrar staðsetningar væri töluverður. 

Í úttekt samtakanna um betri spítala á betri stað, sem gerð var í júní 2015, sagði að kostnaður við byggingu og reksturs nýs þjóðarsjúkrahúss væri mismunandi eftir staðsetningum. Samtökin báru saman þrjá staði. Í fyrsta lagi viðbyggingar við gamlar byggingar á Hringbraut, viðbyggingu við spítalann í Fossvogi og byggingu nýs spítala frá grunni á öðrum stað, sem væri nýr staður nær búsetumiðju höfuðborgarsvæðisins og við meginumferðaræðar. KPMG fór yfir útreikningana, skoðaði forsendur og staðfesti útreikningana miðað við gefnar forsendur. Samanburðurinn sýndi að hagkvæmara væri að byggja í Fossvogi en við Hringbraut og enn hagkvæmara væri að reisa nýtt þjóðarsjúkrahús frá grunni á nýjum stað. 

Meginmarkmið þessarar tillögu er að gerð verði óháð, fagleg staðarvalsgreining fyrir nýja þjóðarsjúkrahúsið. Gera þarf faglega staðarvalsgreiningu til að sjá hvar hagkvæmast og best væri að byggja nýtt þjóðarsjúkrahús. Til þess þarf óháða fagmenn svo sem skipulagsfræðinga, sjúkraflutningamenn, þyrluflugmenn, verkfræðinga, viðskiptafræðinga, umferðarfræðinga og heilbrigðisstarfsfólk. Fagfólki yrði falið að gera úttekt á mögulegum staðsetningum út frá fjárhags-, gæða-, samgöngu-, umferðar- og öryggismálum. Niðurstöðurnar þyrfti að birta með aðgengilegum hætti fyrir allan almenning og stjórnmálamenn þannig að glögglega megi átta sig á hvernig hver staður kemur út á helstu mælikvörðum sem máli skipta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki