fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Heykvíslarnar á loft: Samtök ungra bænda gagnrýna Kristján Þór Júlíusson harðlega

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 22. janúar 2018 11:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Þór Júlíusson landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra. Mynd/DV

Samtök ungra bænda (SUB) gagnrýna harðlega þá ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Kristjáns Þórs Júlíussonar, að leysa upp samráðshóp um endurskoðun búvörusamninga. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þess í stað verður skipaður nýr samráðshópur þar sem fækkað er um nærri helming í hópnum. Með því hverfur ráðherra frá þeirri stefnu að ná skuli víðtækri sátt og skilningi margra aðila um búvörusamninga, eins og nauðsynlegt er.

Í ályktun sem stjórn SUB samþykkti á fundi sínum 18. janúar 2018 segir m.a. að með þessu sé víðtæku samráði hafnað og þess í stað horfið til fortíðar þar sem fáir komi að borðinu. Hvorki er hafður með fulltrúi úr umhverfisráðuneytinu, sem á þó marga snertifleti með landbúnaðinum, né heldur frá ungum bændum sem lengst þurfa að búa eftir þeirri stefnu sem mörkuð er núna.

Samtök ungra bænda skora á ráðherra að endurskoða þessa ákvörðun og halda stærð hópsins óbreyttri svo hann geti staðið undir nafni sem samráðshópur.

 

Ályktun stjórnar Samtaka ungra bænda sem samþykkt var á fundi 18. janúar 2018:

Ráðherra hafnar víðu samráði

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Kristján Þór Júlíusson, hefur með ákvörðun sinni um að skipa upp á nýtt í endurskoðunarnefnd búvörusamninga hafnað því að víðtækt samráð skuli viðhaft við endurskoðunina. Þess í stað á nú að fækka um helming í nefndinni og hverfa aftur til fortíðar þar sem fáir koma að borðinu. Ráðherra hverfur því frá þeirri stefnu að ná skuli víðtækri sátt og skilning margra aðila um búvörusamninga. Hvorki er hafður með fulltrúi úr umhverfisráðuneytinu, sem á þó marga snertifleti með landbúnaðinum, né heldur frá ungum bændum sem lengst þurfa að búa eftir þeirri stefnu sem mörkuð er núna.
Samtök ungra bænda mótmæla þessarri stefnubreytingu ráðherra og harma að ekkert samráð skuli hafa verið haft við samtökin áður en ákvörðun var tekin um upplausn hópsins. Skorað er á ráðherra að endurskoða þessa ákvörðun og halda stærð hópsins óbreyttri svo hann geti staðið undir nafni sem samráðshópur.

 

F.h. stjórnar SUB

Einar Freyr Elínarson
Formaður / Chairman

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins